fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Leikarinn sagður vera í öndunarvél á sjúkrahúsi

Fókus
Mánudaginn 26. janúar 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn Quinton Aaron, sem gerði garðinn frægan sem Michael Oher í kvikmyndinni The Blind Side, liggur nú á sjúkrahúsi vegna alvarlegrar blóðeitrunar.

TMZ greinir frá því að leikarinn, sem er fertugur, hafi hnigið niður á heimili sínu í síðustu viku þegar hann var að ganga upp stiga. Hann var fluttur á sjúkrahús í kjölfarið þar sem hann hefur dvalið síðustu daga.

Sjá einnig: Leikarinn úr The Blind Side búinn að léttast um 90 kíló

Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir leikarann á vefnum GoFundMe, en samkvæmt upplýsingum þar er leikaranum haldið sofandi og hann sagður vera með alvarlega blóðeitrun.

Umboðsmaður leikarans segir aftur á móti að ástand hans sé stöðugt og læknar séu að reyna að finna út úr því hvað kom fyrir.

The Blind Side kom út árið 2009 og fór Quinton með aðalhlutverk myndarinnar ásamt Söndru Bullock sem hlaut Óskarinn fyrir leik sinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi