

Auðunn Lúthersson, tónlistarmaður, best þekktur sem Auður, hefur sett íbúð sína í miðborginni á sölu.
„Ertu að leita að íbúð? Viðurkenni að ég er smá meyr á þessum tímamótum. Þarna er gott að drekka kaffi, semja lög og rölta svo yfir í Sundhöllina. Ég á stórkostlegar minningar úr íbúðinni og skila íbúðinni út í kosmósinn með þakklæti að leiðarljósi. Yndislega íbúðin mín á Leifsgötu 10 er núna til sölu. 53 fermetrar af fegurð. Trúi því og treysti að þetta fallega rými fari í góðar hendur.“

Íbúðin er 53,4 fm tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í húsi sem byggt var árið 1937.
Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Sér geymsla og sameiginlegt þvottahús í kjallara.

Vekjum athygli á því að teiknuð hafa verið húsgögn inná mynd sem á að sýna möguleika, segir í auglýsingu.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.