fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Afhjúpar grimmilega brandarann um Sydney Sweeney sem klipptur var út

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 13:30

Sydney Sweenry

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grínistinn Nikki Glaser ætlaði að vera með grimmilegan brandara um leikkonuna Sydney Sweeney í opnunarræðu sinni á Golden Globes verðlaununum ef Sweeney hefði verið í salnum.

„Í kvöld er hátíðarkvöld en við getum ekki hunsað að þetta er skrýtinn tími í Hollywood,“ sagði Glaser í þættinum The Howard Stern Show á þriðjudag, þar sem hún opinberaði brandarann sem ekki var fluttur á verðlaunahátíðinni.

„Fólk fer bara ekki í bíó til að sjá hluti. Ef þú trúir mér ekki, þá var kvikmynd í ár þar sem Sydney Sweeney lék lesbíu sem bara hoppaði um í litlum stuttbuxum í tvær klukkustundir og myndin græddi 14 dollara.“

Glaser vísaði til kvikmyndarinnar Christy, ævisögulega mynd þar sem Sweeney lék hnefaleikakonuna Christy Martin. Sweeney breytti útliti sínu verulega fyrir hlutverkið en myndin floppaði algjörlega í miðasölunni.

Nikki Glaser

Meðal annarra listamanna sem sluppu frá grimmilegu gríni Glaser voru Brad Pitt, Sean Penn, Julia Roberts og Jonathan Bailey.

Ef Pitt hefði mætt, en hann var tilnefndur fyrir hlutverk sitt í kappakstursmyndinni F1 hefði brandara Glaser verið: „Þegar karlmaður verður sextugur fær hann að leika kappakstursbílstjóra. Á meðan, eftir 35 ára aldur, fá konur hlutverk þreyttrar mömmu sem hatar líf sitt.“

„Brad, þú varst svo góður í myndinni að ég var næstum sannfærð um að þú hefðir ekið þér sjálfum eitthvert síðustu 30 árin. En Brad ók mikið sjálfur í myndinni. Og Brad, ég vil ekki gera þig vandræðalegan, en stefnuljósið var á allan tímann.“

Brad Pitt

Penn var mættur, en slapp auðveldlega frá gríninu, þar sem Glaser sagði hann líta út eins og „kynþokkafull leðurhandtaska“.

Glaser sagði að hún og teymi hennar hefðu fundið upp nokkra brandara um Penn áður en þau ákváðu að halda sig við þennan eina brandara því hún „vildi ekki gera koma honum úr jafnvægi“.

Á meðan þeirra voru: „Sean Penn er tilnefndur í kvöld. Ég geri ráð fyrir bestu æðar í hálsi?“ og „Tveir af duglegustu leikurunum í Hollywood eru hér í kvöld: neðri augnlok Seans Penn.“

Sean Penn

Stjarnan úr Wicked, Jonathan Bailey, var ekki mættur, en ef svo hefði verið hefði hann fengið að heyra að hann hefði verið útnefndur „kynþokkafyllsti maður á lífi“ árið 2025 af People tímaritinu.

„Jonathan er fyrsti opinberlega samkynhneigði maðurinn sem er útnefndur kynþokkafyllsti maður á lífi af People tímaritinu. Og í fyrstu var ég bara svona, þurfum við virkilega að segja „opinberlega“? Og svo skoðaði ég lista yfir fyrri vinningshafa og ég var bara svona, „Ó, já, það þurfum við.““

Jonathan Bailey

Síðasta stjarnan sem Glaser afhjúpaði að hefði verið klippt úr einræðu hennar var Julia Roberts því að hennar sögn er stjarnan úr Pretty Woman ósnertanleg.

„Þetta var brandarinn sem ég skrifaði um Roberts þar sem ég hélt bókstaflega að ég yrði tjöruð og fjaðrið eftir þáttinn. Julia Roberts er tilnefnd fyrir After the Hunt. Ég veit ekki hvað myndin snýst um, en ég geri ráð fyrir að leitin hafi verið til að finna einhvern sem hefur séð myndina.“

Julia Roberts

Þrátt fyrir að hafa sleppt þessum bröndurum í einræðu sinni gætti Glaser þess samt að vekja athygli á nokkrum frægum einstaklingum sem mættir voru í salnum, þar á meðal Leonardo DiCaprio, fyrir sögu hana um að vera aðeins í samböndum með yngri konum, og Timothée Chalamet, fyrir grannt vaxtarlag hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna

Nýtt æði grípur um sig meðal íslenskra kvenna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mate flytur sig um set

Mate flytur sig um set
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi

Áhrifaríkt verk til umræðu á Leikhúskaffi