fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Skiptu brúðkaupinu í tvennt: „Þetta var bara akkúrat eins og við vildum hafa það“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 11. janúar 2026 09:00

Kristín Þóra og Teitur á brúðkaupsdaginn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir og eiginmaður hennar, lögfræðingurinn Teitur Skúlason, gengu í það heilaga í ágúst 2024.

Þau héldu innilegt og fallegt leynibrúðkaup fyrir sína nánustu og slógu seinna í gott partý með vinum og vandamönnum.

Kristín Þóra er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hlustaðu á þáttinn á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Textabrot úr þættinum má lesa hér að neðan.

Kristín og Teitur kynntust fyrir um níu árum síðan með aðstoð internetsins, réttara sagt Tinder, og var fyrsta stefnumótið þeirra göngutúr um miðborgina.

„Við vorum búin að spjalla rosa lengi áður en við hittumst, svo bara leiddi eitt af öðru, við fórum svo á annað deit og annað deit. Þetta var einhvern veginn ótrúlega áreynslulaust,“ segir Kristín brosandi.

En af hverju leynibrúðkaup?

„Það skorar mjög hátt á streituskalanum að halda brúðkaup,“ segir Kristín, sem vissi að hún myndi ekki njóta undirbúningsins, heldur myndi það hafa þveröfug áhrif.

Þau ákváðu að skipta þessu í tvennt. „Þannig að við buðum foreldrum okkar og systkinum, þau vissu af þessu, í Borgarnes og giftum okkur þar. Fórum svo á hótelið. Það var æði að hafa þetta svona tvískipt! Það var bara einhvern veginn í mýktinni og gleðinni, það var hvíti kjóllinn og að ganga inn kirkjugólfið, ótrúlega innilegt og einlægt. Svo seinna héldum við bara partí.“

Vinkona Kristínar, hjónabandsráðgjafinn Kristín Tómasdóttir, „gaf“ hjónin saman í partýinu, Frikki Dór kom að skemmta og var mikið stuð og gleði.

Nú eiga líka hjónin tvo daga til að halda upp á. „Þetta var svo gaman. Þetta var bara akkúrat eins og við vildum hafa það,“ segir Kristín.

Hún ræðir nánar um ástina, brúðkaupið, leiklistina, kulnun og margt fleira í Fókus, sem má hlusta á í heild sinni hér.

Kristín er enn að sýna Á rauðu ljósi í Þjóðleikhúsinu þar sem hún talar til áhorfenda á bráðfyndinn hátt, en um leið af einlægni og hispursleysi, um stress, streitu, seiglu, aumingjaskap og dugnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 4 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað