

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hyggst nú taka sér hlé frá því að taka lögmannsprófið í Kaliforníu eftir misheppnaða tilraun í fyrra. Heimildir herma að hún hafi sleppt febrúarprófinu og hafi engar áætlanir um að reyna aftur í júlí.
Þeim sem vilja taka prófið er boðið upp á tvær tilraunir á ári. Heimildir herma þó að Kardashian muni ekki ætla að reyna aftur fyrr en árið 2027. Kardashian hefur aðeins tekið lögmannsprófið í Kaliforníu einu sinni. Hins vegar tók hún einnig svokallað „baby bar“ próf í Kaliforníu, sem krafist er til að komast inn í lögfræðinámið, þrisvar sinnum áður en hún stóðst loksins fjórðu tilraun sína árið 2021.
Kardashian, sem leikur lögmann í þáttunum All’s Fair, játaði í nóvember að hafa fallið á lögmannsprófinu í Kaliforníu eftir tilraun sína í júlí.
„Jæja… ég er ekki lögfræðingur ennþá,“ skrifaði hún á Instagram þegar hún tilkynnti fréttirnar. „Ég leik bara mjög vel klædda konu í sjónvarpinu. Sex ár eru liðin í þessari lögfræðiferð og ég er enn með í þessu þar til ég stend lögmannsprófið. Engar flýtileiðir, engin uppgjöf bara meira nám og enn meiri ákveðni.“


Í desember sagði Kardashian opinskátt að mistökin hefðu haft mikil áhrif á sjálfstraust hennar.
„Ég tók mér smá tíma til að vinna úr þessu og strax, þegar ég fékk niðurstöðurnar, leið mér ekki vel með það. Mér leið mjög óþægilega og var ekki örugg um tíma,“ sagði Kardashian við Time Magazine. „Maður fær niðurstöðurnar á föstudegi og ég vissi að á sunnudagsmorgni yrðu þær aðgengilegar á netinu. Svo ég vildi nefna það fyrst og láta fólk vita að þetta gekk ekki eins og ég vildi.“
Kardashian opnaði sig áður um námsferil sinn í þætti af Kardashians. Í þættinum sagði hún tárvot frá því að hún hefði orðið fyrir andlegu áfalli vegna erfiðis námsins sem þurfti fyrir prófið.
„Ég ætla alveg að gráta því þetta er helvíti þreytandi,“ sagði hún og sagðist hafa rekist á vegg í undirbúningnum. „Ég fór í bakinu við lærdóminn og það er eins og í hvert skipti sem ég held að ég hafi náð ákveðnu takmarki, þá er mér kippt tilbaka,“ sagði hún grátklöll og útskýrði að hún gæti varla gengið og varla setið.