

Klæddi sig í 24 bleyjur og dýfði sér í Thames fljót til að mótmæla – Fékk lífshættulegan sjúkdóm
Breskur listamaður klæddi sig í galla sem var saumaður saman úr 24 bleyjum og synti um ánna Thames í Bretlandi til þess að mótmæla skolpmengun. Gjörningurinn endaði með því að listamaðurinn veiktist.
„Ég ætla að verða sníkjudýr,“ sagði listamaðurinn Zack Mennell, eða zack mennell eins og hann kallar sig, við dagblaðið The Guardian.
Hafði fólk sem átti leið fram hjá Thames ánni, sem rennur í gegnum London, séð óhugnanlega veru. Veru sem virtist vera búin til úr rusli sem svamlaði í ánni og laumaðist um við árbakkann, líkt og skrímsli úr gamalli Universal hryllingsmynd.
Veran var þó bara Mennell, sem hafði saumað saman 24 pappírsbleyjur í búning sem hann klæddi sig í. Eins og barnafólk veit þá eru bleyjurnar rakadrægar og því blés búningurinn út þegar Mennell dífði sér í fljótið. Var ásjóna hans ansi ófrýnileg.

En í Thames fljóti er ekki aðeins vatn heldur tekur áin við skólpi frá 16 milljón manns. Hafa ber þó í huga að fjöldamargar öflugar skolphreinsistöðvar eru að störfum allan sólarhringinn.
Engu að síður er fljótið mengað og bleyjur Mennels drógu ófögnuðinn í sig. En gjörningur hans var einmitt gerður til þess að mótmæla skólpmengun.
„Þetta var svolítið skrýtið, svolítið erfitt, svolítið kjánalegt,“ sagði Mennell. En hugmyndina fékk hann þegar hann var að ganga heim af djamminu í London, með fram Thames ánni. „Þetta voru átök. En þetta var einnig gert til þess að mynda tengsl við áhorfandann. Lifandi list snýst ekki um að vera allsber bara af því að manni langar til þess.“
Verkið, sem kallast para(site) og er orðaleikur sem tengir saman orðin sníkjudýr og „veikur-staður“. Er reyndar stærra en aðeins bleyjuskrímslið. Í því leikur Mennell sér með alls kyns mengaða hluti og vatn, klínir því á sig og umvefur.
Verkið tók hins vegar toll af heilsu Mennel. En eftir að hafa svamlað um Thames ánna fékk hann sjúkdóm sem kenndur er við Weil, bakteríusjúkdóm sem fólk fær þegar það kemst í kynni við þvag úr rottum.
Sjúkdómurinn hefur áhrif á ýmis líffæri líkamans, fólk verður gult á húðinni og augum, fær útbrot, hósta magaverk og bólgna ökkla og úlnliði. Alvarlegri einkenni eru nýrnabilun og blæðingar í lungum og um 5 til 10 prósent lifa sjúkdóminn ekki af.