

Húsið, eða kannski frekar höllin, er í Miami á Flórída en hann og eiginkona hans, Priscilla Chan, greiddu um 170 milljónir dollara fyrir eignina, en það er upphæð sem jafngildir um 21 milljarði króna.
Um er að ræða strandareign sem er enn í byggingu á einkaeyjunni Indian Creek, samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal.
Lóðin var áður í eigu lýtalæknisins Aaron Rollins og eiginkonu hans, fasteignasalans Marine Rollins, en þau greiddu 30 milljónir dollara fyrir lóðina árið 2020. Þau settu síðan saman áætlanir um tæplega 2.800 fermetra lúxushús með níu svefnherbergjum.
Húsið er enn í byggingu en teikningar gera meðal annars ráð fyrir einkabryggju, sundlaug, líkamsræktarsal, hárgreiðslustofu, nuddherbergi, 5.700 lítra fiskabúri, heimabíósal og bókasafni svo eitthvað sé nefnt.
Indian Creek er vinsælt meðal ríka og fræga fólksins, en eyjan hefur stundum verið kölluð „Billionaire Bunker“ vegna þess hve margir ofurríkir einstaklingar eiga þar heimili.
Meðal nágranna Zuckerbergs og Chan verða meðal annars auðkýfingurinn Jeff Bezos og fyrrverandi NFL-stjarnan Tom Brady, samkvæmt umfjöllun People.
Fasteignasalar á svæðinu segja viðskiptin endurspegla hvernig fasteignamarkaðurinn í Miami hefur á undanförnum árum þróast úr tiltölulega ódýrum markaði í eftirsóttan áfangastað fyrir ofurríka kaupendur.
Sú þróun hafi meðal annars fengið aukinn kraft eftir heimsfaraldurinn og í kjölfar umræðu um mögulegan milljarðamæringaskatt í Kaliforníu. Zuckerberg og Chan eiga þegar nokkrar stórar og miklar fasteignir víða um Bandaríkin, þar á meðal í Palo Alto auk stórra eigna á Hawaii og við Lake Tahoe.


