fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Heimsfrægur íslenskur tónlistarmaður sem fáir Íslendingar hafa heyrt um – 200 milljónir á Spotify

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 12:30

Yaelokre er að slá í gegn. Mynd/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vanalega myndi það heyra til tíðinda að íslenskur tónlistarmaður væri kominn með 3 milljónir mánaðarlega hlustenda á streymisveitunni Spotify og eitt lag í 200 milljón hlustunum. En það er nákvæmlega það sem tónlistarmaðurinn Yaelokre, eða Keath Ósk, hefur náð. Samt hafa fáir Íslendingar heyrt minnst á hán.

Rithöfundurinn Andri Snær Magnason bendir á þetta afrek í færslu á samfélagsmiðlum, en hann hafði þá nýlega heyrt af því frá tónlistarmanninum Unnsteini Manuel Stefánssyni. Það er að kvár frá Akureyri, með filippínskar ættir, sem gengur undir listamannsnafninu Yaelokre væri gjörsamlega að slá í gegn.

„Það er árangur sem aðeins Laufey, Björk og Monsters and men hafa náð og hán mun víst fylla tónleikahallir úti í heimi. Merkilegt að það sé hægt að ná slíkum árangri á lítilli eyju en næ ekki að gúggla neina umfjöllun hérlendis,“ segir Andri Snær.

Yaelokre sló í gegn á TikTok árið 2024 og er nú á samningi hjá útgáfufyrirtækinu Atlantic Records. Tónlistin nokkurs konar framsækin og nútímaleg þjóðlagatónlist með filippínskar rætur. Yaelokre er gjarnan í líflegum búningum á sviði en eins og kemur fram í tölfræði á siðunni setlist.fm þá hefur hán aldrei komið fram á tónleikum hérlendis. Aðeins í Filippseyjum, Bandaríkjunum, Bretlandseyjum og á meginlandi Evrópu.

Lagið Harpy Hare hefur fengið tæplega 200 milljón hlustanir á streymisveitunni Spotify og fjölmörg önnur lög hafa fengið tug milljóna hlustana.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi

Halle Berry opinberar það sem hún gerir ekki lengur í kynlífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé

Hödd komin á Ísland í dag – Á skjánum eftir langt hlé