

Sara Pétursdóttir söngkona, betur þekkt sem Glowie, og Guðlaugur Andri Eyþórsson, klippari og ljósmyndari, hafa sett íbúð sína í Gufunesi á sölu. Söluverð er sérstakt, 53.412.464 kr.
Íbúðin er 55,4 fermetra íbúð á annarri hæð í Jöfursbás 11E, húsi sem byggt er árið 2021. Íbúðin skiptist í forstofu,eldhús og stofu í einu rými, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Úr stofu er útgengi á svalir sem snúa í suðvestur.


Húsið sem íbúðin er í nefnist Sif og er hluti af byggð Þorpsins vistfélags þar sem íbúðir eru svansvottaðar með áherslu á hagkvæmni, grænar lausnir og sjálfbært umhverfi fyrir ungt fólk. Sérstaða íbúðarinnar felst meðal annars í þeim kvöðum sem fylgja byggðinni. Kaupendur þurfa að vera á aldrinum 18 til 40 ára og hámarks söluverð eignarinnar fylgir vísitölu innan hverfisins, sem þýðir að ekki er heimilt að yfirbjóða ásett verð. Þá eru gæludýr velkomin í húsinu.
137 íbúðir eru í Jöfursbási í fimm húsum, á þremur til fimm hæðum, sem raðað er um miðlægt torg og garðrými. Íbúðarhúsin eru verksmiðjuframleidd úr forsteyptum einingum og byggð með það að markmiði að tryggja gæði, endingu og vistvænar lausnir. Við byggðina eru matjurtagarðar á landi Reykjavíkurborgar sem íbúar geta nýtt til ræktunar. Deiliskipulag Gufuness byggir á verðlaunatillögu hollensku arkitektastofanna jvantspijker og Felixx, sem unnu hugmyndasamkeppni árið 2016. Tillagan segir Gufunes eiga að verða ventill fyrir ungt fólk sem sækist eftir borgarbrag, grósku og samfélagslegri nálgun frekar en hefðbundnum úthverfum.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.