

Færeyingurinn fjölhæfi Jógvan Hansen og eiginkona hans, Hrafnhildur Jóhannesdóttir, hafa sett íbúð sína að Súluhöfða 25 í Mosfellsbæ á sölu.
Íbúðin er neðri hæð í tvíbýlishúsi sem byggt var árið 2000. Í lýsingu segir að eignin hafi verið nánast öll endurnýjuð að innan árið 2011.
Tvö einkabílastæði fylgja íbúðinni og frá bílastæðinu er gengið niður hellulagðar tröppur að íbúðinni.

Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, borðstofu og stofu í einu rými, þaðan sem útgengt er á hellulagða verönd, þrjú svefnherbergi, fataherbergi inn af hjónaherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi.

Í viðtali við Vísi fyrr í vikunni sagði Jógvan að fjölskyldan væri ekki á leið úr Mosfellsbæ heldur stæði til að byggja hús á milli tengdamóður hans og mágkonu.
Útigeymsla er á lóðinni, í henni hefur Jógvan komið sér upp karlagreni, mancave eins og fyrirbærið heitir á ensku. Og trónir númeraplatan Jógvan fyrir ofan dyrnar í grenið.

Um karlagrenið sagði Jógvan við Vísi:
„Þetta er frægasta „mancave“ á Íslandi og allir frægustu karlmenn á Íslandi farið inn í þennan kofa og fengið sér skerpukjöt, grindhval, spik, snaps og bjór. Þetta er kallað Karlakot, sem er smá masókístískt nafn, en ég veit ekki hvernig það byrjaði. Við höfum í gamni sagt að það fari bara karlmenn þarna inn en það er ekki raunin. Börnin mín þekkja þetta bara sem Karlakot frekar en útihúsið. Ég á margar góðar sögur úr þessu húsi, Jesús minn. Það er eins gott að það getur ekki talað og ég lýg því ekki þegar ég segi að það hafa margir stórkostlegir menn komið inn í þetta blessaða kot.“
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.