

Söngkonan, sem hlaut verðlaun fyrir lagið Wildflower, nýtti ræðuna til að tjá sig um stöðu innflytjenda í Bandaríkjunum og sagði meðal annars að „enginn væri ólöglegur á stolnu landi,“ með vísun til landnáms Evrópubúa í Ameríku.
Í ræðu sinni hvatti Eilish fólk til að láta í sér heyra, mótmæla og standa saman gegn því sem hún kallaði óréttlæti gagnvart innflytjendum. Hún lauk ræðu sinni á að nota f-orðið þegar hún talað um ICE, hið umdeilda tolla- og innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna.
Ræða Eilish vakti töluverða kátínu meðal viðstaddra í salnum en á netinu fór fljótlega að bera á gagnrýni.
Í kjölfar ræðunnar bentu ýmsir netnotendur og álitsgjafar á að lúxusheimili Eilish í Los Angeles standi á landi sem áður tilheyrði Tongva-frumbyggjaættbálknum. Sumir gagnrýnendur sögðu ummæli hennar bera merki um hræsni og kölluðu eftir því að hún annaðhvort skilaði húsinu eða opnaði það fyrir innflytjendum í samræmi við orð sín.
Talsmaður Tongva-ættbálksins staðfesti í samtali við breska fjölmiðilinn Daily Mail að heimili söngkonunnar standi á landi forfeðra ættbálksins.
Hann tók þó fram að Eilish hefði ekki haft beint samband við fulltrúa ættbálksins vegna eignarinnar á umræddri landareign, en jafnframt sagði hann að ættbálkurinn kynni að meta þegar opinberar persónur veki athygli á sögu og stöðu frumbyggja í Bandaríkjunum.
Ummæli Eilish féllu á sama tíma og fleiri þekktir listamenn lýstu andstöðu við aðgerðir bandarískra stjórnvalda í innflytjendamálum. Nokkrar stjörnur, þar á meðal tónlistarmennirnir Joni Mitchell og Kehlani, báru merki með slagorðinu „ICE OUT“ í mótmælaskyni á hátíðinni.