fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Saga Dröfn var að lifa af en ekki lifa: „Það hrundi allt eftir að hann lamdi mig“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 23. janúar 2026 11:30

Saga Dröfn Haraldsdóttir er gestur vikunnar í Fókus.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Saga Dröfn Haraldsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún stígur fram og segir sögu sína af kynferðis- og heimilisofbeldi – og upplifun sinni af því þegar íslenska réttarkerfið brást henni, ekki einu sinni heldur tvisvar. Með henni í þættinum er kærasti hennar, Ingólfur Valur Þrastarson, sem veitir henni stuðning á meðan hún ræðir um þung og viðkvæm málefni. Varað er við lýsingum á ofbeldi og afleiðingum þess.

Saga var um fimmtán ára gömul þegar hún kærði nauðgun. Gerandi hennar var dæmdur í héraðsdómi en síðar sýknaður í Hæstarétti, þrátt fyrir vitnisburði sem bentu til þess að hún hefði ekki getað veitt samþykki. Henni fannst kerfið hafa brugðist sér og eftir sat hún án réttlætis.

Í fyrra ákvað hún að treysta kerfinu á ný og kærði fyrrverandi kærasta sinn fyrir heimilisofbeldi. Hún segir að hún hafi lagt fram upptökur, myndefni og áverkavottorð sem sönnunargögn og talið það vera nóg. En nýverið fékk hún þær fréttir að rannsókn málsins hefði verið felld niður þar sem brotið var talið minniháttar og fyrnt.

Saga og Ingólfur, eða Ingó eins og hann er kallaður, hafa verið saman í rúmt ár. Þau framleiða bæði myndefni fyrir OnlyFans og eru ötulir talsmenn jafnréttis og gegn kynferðisofbeldi. Hægt er að hlusta á þáttinn á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Textabrot úr viðtalinu má lesa hér að neðan.

Saga birti myndband á TikTok fyrir stuttu af óhugnanlegu atviki, þar sem má heyra orðaskipti milli hennar og fyrrverandi kærasta hennar, sem hún sakar um heimilisofbeldi. Í hljóðklippunni má heyra Sögu dauðhrædda og grátandi og manninn segja: „Ég lamdi þig bara þrisvar.“ Hún hefur breytt rödd mannsins svo ekki er hægt að persónugreina hann.

@sagadrofn

Saklaus uns sekt er sönnuð.

♬ original sound – Saga Dröfn

„Á þeim tíma var ég farin að trúa orðunum hans fram yfir eigin upplifanir og minn veruleika,“ segir Saga um sambandið.

Saga fer aftur í tímann og segir að það hafi tekið hana tíma að átta sig á því að hún byggi við heimilisofbeldi.

„Sambandið byrjaði vel en með tímanum fór hann að æsa sig meira, talaði hvassar við mig og síðan byrjaði þetta hægt og rólega, andlegt ofbeldi sem varð síðan meira […] Hann gerði mjög lítið úr mér, byrjaði að skjóta á mig, að ég væri ekki nógu góð og síðan varð þetta rosalega fljótt mjög ljótt.“

Saga segir að þegar hún reyndi í eitt skiptið að tala við hann og segja honum hversu illa henni liði þá hafi hann hvatt hana til að enda líf sitt.

Saga Dröfn lýsir vítahringnum sem hún var föst í.

Beið eftir sprengjunni

Það fylgdi því mikil skömm að vera í svona sambandi og reyndi Saga sitt besta að halda út góðri ímynd út á við og á samfélagsmiðlum.

„Þetta er svona hringur. Þetta byrjar á að það verður smá spenna. Kannski út af litlum hlutum, eins og ég var ekki búin að þrífa ræktarbuxurnar hans og hann var pirraður yfir því. Síðan varð spennan meiri og meiri og það tók minna fyrir hann til þess að verða pirraður. Síðan er þetta komið á þann tímapunkt að maður er bara tiplandi á tánum af því að maður er að bíða eftir sprengjunni. Maður er að bíða eftir bara að allt fari í kaos. Síðan gerist það og svo eftir það, þá: „Fyrirgefðu, ég missti stjórn á mér. Ég ætlaði ekki að gera þetta.“ En það kom samt alltaf: „En þú gerðir mig svo…“ Eftir það var allt yndislegt í smá tíma. En síðan byrjaði þetta allt aftur.“

Saga segir að hún sjái það núna að þessi „yndislegi“ tími sem kom á eftir ofbeldi var ekkert svo yndislegur en út af því sem á undan gekk virkaði hann svo frábær og vildi hún halda í þessa „góðu“ tíma.

„Síðan settist ég of nálægt honum í sófanum og þá sparkaði hann mér úr sófanum,“ segir Saga Dröfn.

„Ég man þegar hann lamdi mig síðan“

Saga segir að líkamlega ofbeldið hafi ekki verið mjög augljóst til að byrja með, hún hafi ekki alveg áttað sig á því að þetta væri ofbeldi.

„Þetta byrjaði á því að hann ýtti í mig. Síðan fór hann að ýta fastar í mig og hrinda mér. Síðan settist ég of nálægt honum í sófanum og þá sparkaði hann mér úr sófanum. Þetta var allt svona, ég hugsaði: „Hann kannski ýtti mér en hann er ekki að lemja mig.“ En ég man þegar hann lamdi mig síðan og þá gat ég ekki lengur talið mér trú um annað. Ég sá það bara einhvern veginn á honum, hann breyttist í andlitinu. Ég veit ekki hvernig ég á að útskýra það en hann varð… tilfinningalaus í andlitinu. Svo lamdi hann mig með krepptum hnefa í nokkur skipti.“

Sögu fannst hún föst í martröð. „Ég lá á koddanum mínum á kvöldin og starði upp í loftið, alltaf á sama stað, og hugsaði með mér hvað ég hataði líf mitt og sá fyrir mér að eina leiðin út úr þessu væri ef ég myndi láta mig hverfa eða hann myndi gera það, því ég var föst og fannst engin önnur undankomuleið.“

Það tekur þolendur að meðaltali sjö skipti að fara frá geranda sínum. Saga útskýrir hvað hafi gefið henni kraftinn til að slíta sambandinu.

„Það hrundi allt eftir að hann lamdi mig,“ segir Saga og bætir við að hún gat ekki lengur talið sér trú um að sambandið væri ekki ofbeldissamband. „Fjölskylda mín og vinir mínir voru búin að benda mér á að þetta væri ekki heilbrigt, að ég væri í ofbeldissambandi. Ég var líka á barmi þess að enda inn á geðdeild, mér leið svo illa.“

Saga Dröfn er í dag í hamingjusömu sambandi með Ingólfi Vali.

„Ég var bara að lifa af en ekki lifa“

Saga hafði tekið upp nokkur atvik á símann sinn af ofbeldinu en beið með að kæra. „Ég var bara að lifa af en ekki lifa,“ segir hún. Nokkrum árum síðar, í október 2025, lagði hún fram kæru gegn honum.

Hún fékk nýlega að vita að rannsókn væri hætt og að brotið væri fyrnt. Saga kærði hann fyrir bæði kynferðis- og líkamlegt ofbeldi.

„Ég var með myndir af áverkum, ég var með upptökur. Ég var með eitt áverkavottorð,“ segir Saga, sem var niðurbrotin að vita að það væri ekki nóg. Hún segir að hún hafi búið sig undir að erfitt væri að fá ákæru vegna kynferðisofbeldisins, þar sem það væri orð gegn orði, en hún taldi sér trú um að vegna sönnunargagna myndi hann vera dæmdur fyrir líkamsárás. En þar sem líkamsárásin var talin minniháttar og nokkur ár voru liðin var brotið fyrnt og ekkert meira hægt að gera.

Saga gagnrýnir kerfið og fyrningu brotsins, hún segir að það getur tekið þolendur tíma að kæra en að kerfið veiti ekkert svigrúm til þess.

„Kerfið brást mér einu sinni. Síðan fer ég aftur og safna þessum kjark og þorði loksins að gera þetta. Ég hugsaði: „Nei, það getur ekki verið að það eigi eftir að bregðast mér aftur með allt þetta.“ En svo gerir það það. Og ég upplifi bara… mér líður eins og kerfið hafi gefið leyfi fyrir þessu.“

Hlustaðu á allan þáttinn með Sögu á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Fylgdu Sögu Dröfn á Instagram og TikTok. Fylgdu Ingó á Instagram og TikTok.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum