fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Kosning hafin fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 16. janúar 2026 11:42

Mynd: Storytel

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kosning er hafin fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin – Storytel Awards 2026. 

Nú hefur almenningur tækifæri til að kjósa sína eftirlætis hljóðbók í forvali fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin, árlega uppskeruhátíð sem heiðrar höfunda, lesara og útgefendur framúrskarandi íslenskra hljóðbóka frá liðnu ári.

Í forvalinu eru vinsælustu hljóðbækurnar sem gefnar voru út íslensku árið 2025. Bækurnar eru valdar út frá hlustun og stjörnugjöfum notenda í Storytel-appinu. Í hverjum flokki eru 15–25 bækur, og verðlaunaflokkarnir eru: skáldsögur, glæpa- og spennusögur, barna- og ungmennabækur, ljúflestur og rómantík, auk óskáldaðs efnis.

Að lokinni kosningu almennings verða fimm efstu hljóðbækurnar í hverjum flokki formlega tilnefndar. Því næst taka við dómnefndir skipaðar af fagfólki á sviði bókmennta sem hafa það að leiðarljósi að líta heildstætt á hvert verk. Sérstök áhersla er lögð á vandaðan lestur, sem eykur upplifun hlustenda. Hljóðbók ársins í hverjum flokki verður síðan útnefnd á glæsilegri verðlaunahátíð í mars, þar sem höfundar og lesarar verða heiðraðir.

Kosningin er opin öllum og fer fram á vef Íslensku hljóðbókaverðlaunanna og stendur til  26. janúar. Taktu þátt og kjóstu þína eftirlætis hljóðbók.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu