fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Fókus

Fyrrum tengdadóttir Íslands gekk í það heilaga í London

Fókus
Laugardaginn 5. júlí 2025 20:30

Rory McPhee og Mel B á góðri stund

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kryddpían Mel B gekk í það heilaga með unnusta sínum, Rory McPhee, í London í dag. Að sjálfsögðu var fjöldinn allur af frægum einstaklingum viðstaddir brúðkaupið en athygli vakti þó að þrjár aðrar Kryddpíur voru fjarri góðu gamni, þær Victoria Beckham, Geri Halliwell og Mel C.  Emma Bunton, betur þekkt sem Baby Spice, var sú eina af hljómsveitarmeðlimunum sem mættu fögnuðinn og studdi vinkonu sína.

Victoria lét duga að birta færslu á samfélagsmiðlum til heiðurs brúðhjónunum. Geri hunsaði hins vegar hátíðarhöldin með öllu en ekki hefur gróið um heilt milli hennar og brúðurinnar eftir að sú síðarnefndi greindi frá því árið 2019 að þær hefðu átt í stuttu ástarævintýri á árdögum hljómsveitarinnar heimsþekktu. Geri var afar ósátt með að hulunni skyldi varpað af því og hafa stöllurnar ekki talast við síðan.

Um er að ræða annað hjónaband Mel B. en hún giftist Stephen Belafonte árið 2007 en upp úr hjónabandinu slitnaði árið 2016. Í kjölfarið steig söngkonan fram og sakaði Stephen um líkamlegt og andlegt ofbeldi í sambandinu.

Rory og Mel B. hófu samband sitt árið 2018 og vakti aldursmunur þeirra nokkra athygli en Rory er þrettán árum yngri en söngkonan. Hefur hún dásamað eiginmann sinn í viðtölum og sagt að hann láti henni líða öruggri og elskaða.

Á hátindi frægðar sinnar átti Mel B. í ástarsambandi við Fjölni Þorgeirsson, eins og alþjóð veit, og er hún án efa ein þekktasta „tengdadóttir Íslands“.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Síðasti Sjens 2025 – Stórtónleikar Retro Stefson

Síðasti Sjens 2025 – Stórtónleikar Retro Stefson
Fókus
Fyrir 2 dögum

Heima Heimaey, partýtryllir sumarsins!

Heima Heimaey, partýtryllir sumarsins!
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mætti í fyrsta kynlífspartýið árið 2019 – Þetta eru helstu reglurnar

Mætti í fyrsta kynlífspartýið árið 2019 – Þetta eru helstu reglurnar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stebbi Hilmars búinn að fá nóg af orðinu „gaslýsing“ og leggur til fjölmörg önnur

Stebbi Hilmars búinn að fá nóg af orðinu „gaslýsing“ og leggur til fjölmörg önnur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ertu þyngri eftir helgina? – Þetta hefur Ragnhildur um það að segja

Ertu þyngri eftir helgina? – Þetta hefur Ragnhildur um það að segja
Fókus
Fyrir 4 dögum

Framferði stjörnunnar vekur athygli netverja – „Matthew, af hverju tekurðu svona mikið pláss?“

Framferði stjörnunnar vekur athygli netverja – „Matthew, af hverju tekurðu svona mikið pláss?“