fbpx
Föstudagur 13.júní 2025
Fókus

Ragnhildur segir þetta þöglan skaðvald samtímans – Hversu mörg einkenni tengir þú við?

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 12. júní 2025 09:30

Ragga Nagli Mynd: Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, segir dugnaðarkvíða vera hinn þögla skaðvald samtímans. Í sínum nýjasta pistli á Facebook telur hún upp fjölmörg dæmi um dugnaðarkvíða. Hversu mörg tengir þú við?

Dugnaðarkvíði er þögli skaðvaldur samtímans.

Að vera lúsiðin hverja sekúndu eins og hermaur í maurabúi þykir vera hin mesta hetjudáð, en er í raun sinubruni sem brennir okkur út ansi hratt.

Baka súrdeigsbrauð á sunnudögum.

Bollakökur með regnbogasmjörkremi.

Stilla upp með réttri lýsingu og pósta á Instagram.

Hlaupa Laugaveginn í júlí og Reykjavíkurmaraþon í ágúst, 

Gönguskíði á veturna, fjallahjól á sumrin og alltaf CrossFit og lyfta og funheitt jóga.

Njóta gríðarlegrar velgengni í starfi. Fá stöðuhækkun.

Vinna yfirvinnu. Skutla krökkunum. Skila skýrslu. Mæta á réttum tíma. Ná öllum skilafrestum.

En líka á námskeiðið í Núvitundarsetrinu.

Stunda sjósund og sánur.

Drekka græna djúsa.

Vera á ketó og fasta og forðast glútein og sykur.

Passa plastagnir í flíkunum, nestisboxinu og rúmfötunum.

Gróðursetja tré til að kolefnisjafna Teneferðina.

Stunda kæliböð.

Hitta vinina í drykk eftir vinnu.

Mæta á öll fótboltamót og fimleikakeppnir barnanna.

Og auðvitað alltaf í nýjustu tískuspjörinni.

Heimilið eins og uppstillingarbás í IKEA.

Epalsófi tignarlegur í mínímalískri stofu.

Þegar við erum spurð: Hvernig hefurðu það?”

Jú allt bara toppnæs” er kastað fram á hátíðninni.

Mynd: Ragga nagli.

Ragga segir streituna þó gjörsamlega að buga okkur, og streitukerfið í bullandi yfirvinnutaxta við að seyta út streituhormónunum kortisóli og adrenalín allan daginn.

Með tímanum verða kortisólvakarnir ónæmir fyrir streituhormónum stöðugt svamlandi í kerfinu og dægursveiflurnar riðlast.

Krónísk streita veldur ójafnvægi í HPA ásnum (HPA dysregulation), samspil heiladinguls, undirstúku í heila og nýrnahettna.

Heilinn skynjar ógn í umhverfi og sendir skilaboð á nanósekúndu í nýrnahettur sem seyta út adrenalíni og kortisóli til að gera okkur klár í bardaga.

Krónísk streita veldur því að kortisól verður hátt og lágt á röngum tíma dags.

Í stað þess að vera í hámarki á morgnana og gefa fítonskraft til að takast á við daginn, er það miður sín þegar við nuddum stírurnar svo við þurfum nokkra bolla af bleksvartri iðnaðaruppáhellingu til að komast í gang.

Síðan getum við verið í jafn miklu stuði seinnipartinn og miðaldra húsmóðir í sumarbústaðaferð með Sigga Hlö í botni.

Kortisólið uppi í rjáfri en á þessum tíma viljum við að kortisól sé lágt til að hleypa svefnhormóninu melatónin í partýið og gera okkur þreytt.

Ragga bendir á að langvarandi kortisólstreymi veikir ónæmiskerfið:

Og við verðum eins og svampur á allar pestir í umferð og sífellt með kvef og hor því það má ekki kjaftur hnerra í kringum okkur.

Svefninn verður algjört kaos. Sefur ekki heilu næturnar og valsar um stofuna á nóttunni á náttfötunum.

Kvíði kviknar yfir minnstu verkefnum. Að ryksuga er á pari við að skipuleggja leiðtogafund í Hörpu.

Að sækja börnin í skólann eins og að draga blóð úr steini.

Ákveða kvöldmatinn jafn flókið og að læra mandarínsku á hraðnámskeiði.

Undir miklu álagi upplifum við að greindarvísitalan hafi lækkað og við getum ekki tekið þátt í samræðum á kaffistofunni.

Þurfum að gúgla hver er forseti Tékklands og hver vann Júróvisjón.

Rannsókn í Journal of Applied Psychology sýndi að starfsmenn sem upplifðu kröfur um að vinna langan vinnudag og vera ínáanleg utan vinnutíma voru líklegri til að upplifa kulnun og andlega örmögnun.

Það er því ærin ástæða að finna hið gullna jafnvægi í hvíld og sjálfsrækt áður en allt fer í óefni í maskínunni.

Við eigum aðeins eina heilsu og ef þú leyfir svefnleysi, streitu að sliga okkur geturðu átt á hættu að kulnun banki á dyrnar með heimsendingu frá Stress.is.

Ragga bendir á góð bætiefni fyrir streitu: Ashwagandha, Rhodiola, L-glutamine, Magnesium Threonate + L-theanine.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Breytir nafninu sínu aftur

Breytir nafninu sínu aftur
Fókus
Í gær

Maríanna Pálsdóttir: Ungar stelpur að vakna klukkan 5 til að mála sig fyrir skóla

Maríanna Pálsdóttir: Ungar stelpur að vakna klukkan 5 til að mála sig fyrir skóla
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Reynum ekki að þröngva spíra með hópþrýstingi, smánun og samviskubitsvæðingu“

„Reynum ekki að þröngva spíra með hópþrýstingi, smánun og samviskubitsvæðingu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bianca Censori endurtók leikinn – Hefði alveg eins getað verið nakin

Bianca Censori endurtók leikinn – Hefði alveg eins getað verið nakin