Fókus

Ellý segist sjá konu og mann á sviði - „RÚV veit að þjóðin þarf á þessu að halda“

Mynd
Gerum við eitthvað annað í staðinn fyrir Eurovision? Ellý spáir í spilin.

Spákonan og flugfreyjan Ellý Ármanns er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Um er að ræða sérstakan áramótaþátt þar sem Ellý spáir fyrir mörgum þekktum andlitum sem voru til umræðu á nýliðnu ári, ásamt málefnum sem voru í deiglunni, eins og þátttaka Íslands í Eurovision. 

Sjá einnig:

Áramótaspá Ellýjar Ármanns: Við erum hrædd en við stöndum saman

Það kom margt áhugavert fram í þættinum, sem má horfa á í heild sinni hér eða hlusta á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Hér að neðan má horfa á klippu úr þættinum þar sem Ellý spáir fyrir Söngvakeppninni.

 

Ísland mun ekki taka þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, á komandi ári. RÚV sendi frá sér tilkynningu um málið fyrr í desember og kom fram að ekki liggi fyrir ákvörðun um hvort haldin verði söngvakeppni á vegum RÚV á næsta ári.

Við spurðum Ellý um málið: „Gerum við eitthvað annað í staðinn [fyrir Eurovision]?“

„Við erum með okkar... Það er allaveganna maður og kona sem eru í sjónvarpinu að kynna listamenn og við kjósum um einhverja listamenn, það er örugglega bara okkar keppni,“ segir Ellý. Hún segir að það verði einhver keppni, en að Ísland muni standa við ákvörðunina að taka ekki þátt í Eurovision.

„Allt sem fer niður fer upp, og RÚV veit að þjóðin þarf á þessu að halda. Það verður eitthvað, en við verðum náttúrulega ekki með í þessari keppni. Þetta er ákvörðun sem verður staðið við.“

Í spilaranum hér að ofan má sjá spá Ellýjar um söngvakeppnina. Smelltu hér til að horfa á áramótaþáttinn í heild sinni, þú getur einnig hlustað á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum. 

Fylgdu Ellý á Instagram og TikTok.