fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fókus

Fór á veitingastað Jeremy Clarkson og var ekki hrifinn

Fókus
Miðvikudaginn 18. júní 2025 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Big Brother-stjarnan og matargagnrýnandinn Henry Southan heimsótti á dögunum veitingastaðinn Farmer‘s Dog sem er í eigu breska sjónvarpsins Jeremy Clarkson.

Clarkson opnaði staðinn í ágúst í fyrra og er óhætt að segja að hann hafi notið vinsælda. Langar biðraðir mynduðust fyrstu dagana eftir opnun og komust færri að en vildu. Á staðnum er lögð áhersla á að allt hráefni komi frá Bretlandseyjum og býður staðurinn upp á ekta breskan mat.

Óhætt er að segja að Henry hafi ekki verið beint hrifinn af matnum eða veitingastaðnum eins og hann lýsti á TikTok. Fór hann með föður sínum á staðinn síðastliðinn sunnudag í tilefni af feðradeginum.

Í myndbandinu sést þegar hann kemur að veitingastaðnum sem er í Burford á Englandi. „Þetta er eins og að mæta á Glastonbury,“ sagði hann og kvartaði undan gríðarlegum fjölda bíla fyrir utan staðinn.

„Ég er lagður á einhverjum akri langt frá staðnum og þarf að labba þó ég eigi pantað borð,“ sagði hann. „Það er eins gott að þetta verði besta steik sem ég hef borðað. Fátt annað mun réttlæta það að þurfa að leggja svona langt í burtu og ganga alla þessa leið. Ég veit að ég hljóma eins og algjör vælukjói núna en þetta er brjálæði,“ sagði hann á meðan hann þrammaði að staðnum.

Inni á staðnum fékk hann sér roast beef steik og kvartaði undan því að steikin, sem kostaði 26 pund, eða 4.400 krónur, væri mjög þurr. Virtist hann eiga í stökustu vandræðum með að tyggja steikina. Hann smakkaði svo svínakjötið sem boðið er upp á. „Svínið er líka mjög þurrt,“ sagði hann og kvartaði loks undan því að kartöflurnar væru mjúkar en ekki stökkar.

Myndband hans vakti töluverða athygli og sitt sýndist hverjum. „Félagi, þetta er breskur sveitastaður sem býður upp á enskan sveitamat. Þetta er ekki staður fyrir ríka fólkið,“ sagði einn. „Þú bókaðir einn vinsælasta veitingastað Bretlands og ert reiður yfir því að það sé mikið að gera?“

Sumir tóku þó undir með Henry. „Það er alveg rétt, andrúmsloftið þarna inni er skrýtið. Maturinn er í meðallagi,“ sagði til dæmis einn.

Eins og fyrr segir opnaði Clarkson, sem er einna best þekktur fyrir þættina Top Gear, í ágúst í fyrra og er markmið hans að styðja við breska bændur með því að kaupa aðeins hráefni frá þeim. Clarkson hefur sagt að reksturinn á slíkum stað sé þungur enda hráefniskostnaður frekar hár. „Ég er líklega að tapa um 10 pundum á hvern kúnna,“ sagði hann ekki alls fyrir löngu.

Rifjaði hann upp að félagar hans, tónlistarmaðurinn James Blunt og leikstjórinn Guy Ritchie, hefðu ráðið honum frá því að opna slíkan veitingastað en hann látið það sem vind um eyru þjóta.

@henrysouthanJeremy Clarkson’s pub was…interesting.

♬ original sound – Henry Southan

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru
Fókus
Fyrir 3 dögum

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga
Fókus
Fyrir 1 viku

Breytir nafninu sínu aftur

Breytir nafninu sínu aftur
Fókus
Fyrir 1 viku

Maríanna Pálsdóttir: Ungar stelpur að vakna klukkan 5 til að mála sig fyrir skóla

Maríanna Pálsdóttir: Ungar stelpur að vakna klukkan 5 til að mála sig fyrir skóla