Árið 2022 steig spænski rithöfundurinn Alejandro Palomas fram opinberlega og lýsti kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir sem barn af hendi prests í La Salle-skólanum í Premià de Mar á áttunda áratugnum. Þessi opinberun vakti mikla athygli í spænskum fjölmiðlum og leiddi til þess að fleiri fórnarlömb stigu fram og sögðu frá svipaðri reynslu.
Palomas lýsti því hvernig hann varð fyrir kynferðislegu ofbeldi af hendi prests sem hann kallaði „Séra L.“ Hann lýsti því hvernig þessi maður, sem var vinsæll og virtur innan skólans, notaði aðstöðu sína til að misnota hann. Þessi opinberun leiddi til þess að fleiri fyrrverandi nemendur La Salle-skólans stigu fram með svipaðar sögur.
Fjölmiðlar fjölluðu mikið um Palomas og ásakanir hans á hendur kirkjunni. Svo mikil var umfjöllunin að hún náði að lokum inn á spænska þingið og inn í ríkisstjórn Spánar. Fór svo að forsætisráðherra Spánar, Pedro Sánchez, óskaði eftir fundi með Palomas. Að honum loknum lofaði Sanches að gera allt sem í hans valdi stæði til að styðja fórnarlömb og rannsaka málið. Þetta leiddi til þess að ríkisstjórnin skipaði sérstaka nefnd sem ætlað er að rannsaka kynferðisofbeldi innan kirkjunnar.
La Salle skólinn og kirkjan sem rekur hann gaf út opinbera afsökunarbeiðni, sem er afar sjaldgæft að kaþólska kirkjan geri í svona aðstöðu, og lofaði að rannsaka málið. Þrátt fyrir þetta hafa margir gagnrýnt kirkjuna fyrir að bregðast seint við og reyna að hylma yfir með því að flytja sakborninga á milli skóla í stað þess að tilkynna þá til yfirvalda.
Frásögn Palomas hafði djúp áhrif á spænskt samfélag og leiddi til aukinnar umræðu um kynferðisofbeldi innan kirkjunnar. Hann skrifaði bókina Esto no se dice, þar sem hann lýsir reynslu sinni og þeirri þöggun sem oft fylgir slíkum málum. Bókin er nú komin út í íslenskri þýðingu og heitir Við tölum ekki um þetta.
Palomas hefur einnig gagnrýnt þá sem reyna að gera lítið úr alvarleika málsins. Í grein sinni „La náusea“ sem birtist í október 2023 í El País, stærsta fjölmiðli Spánar, svaraði hann harðlega grein eftir heimspekinginn Fernando Savater, sem hafði gert lítið úr kynferðisofbeldi innan kirkjunnar.
Í nýlegum fréttum hefur komið fram að ríkisstjórn Spánar og Vatíkanið hafa rætt um möguleika á samstarfi til að takast á við kynferðisofbeldi innan kirkjunnar.
Einnig hafa fórnarlömb og stuðningsmenn þeirra kallað eftir því að afbrot sem tengjast kynferðisofbeldi gegn börnum falli ekki undir fyrningu, þar sem mörg fórnarlömb treysta sér ekki til að stíga fram fyrr en mörgum árum síðar.
Þessi mál hafa leitt til aukinnar vitundar og umræðu um kynferðisofbeldi innan kirkjunnar á Spáni og mikilvægi þess að hlusta á fórnarlömb og tryggja þeim réttlæti.
Við tölum ekki um þetta (Esto no se dice) hefur komið út á meira en 15 tungumálum hingað til og vakið mikla athygli í hverju landi, ekki síst í þeim löndum þar sem kaþólska kirkjan er stór.
Eins og áður segir, talar Palomas um þau áföll sem hann varð fyrir sem barn í kaþólskum skóla og hvernig honum hefur gengið sem fullorðnum manni að vinna úr þeim. Rauður þráður í gegnum bókina er einstakt samband hans við móður sína sem studdi hann alla tíð.
Bækur Palomas eru þekktar hér á Íslandi en áður hafa komið út fjórar bækur eftir hann á íslensku; Móðir, Hundur, Ást og Sonur minn, sem víða er notuð til kennslu í menntaskólum landsins. Alejandro Palomas var gestur á Bókmenntahátíð í Reykjavík 2023 þar sem hann vakti mikla athygli er hann ræddi þessi mál á opinskáan hátt.
Bókin kom út 31. maí á Íslandi. Sigrún Á. Eiríksdóttir þýddi og María Elínardóttir teiknaði kápumynd og aðrar teikningar í bókinni.