fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Opnar sig um leynilega baráttu föður síns heitins

Fókus
Þriðjudaginn 4. febrúar 2025 16:30

Bindi Irwin ásamt foreldrum sínum, Steve og Terri. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bindi Irwin, dóttir áströlsku sjónvarpsstjörnunnar Steve Irwin, hefur opnað sig um baráttu sem faðir hennar háði í langan tíma áður en hann lést.

Steve var einn ástsælasti sjónvarpsmaður Ástrala og vöktu þættir hans, The Crocodile Hunter, mikla athygli en þeir voru sýndir á sjónvarpsstöðinni Animal Planet. Hann lést í september 2006, aðeins 44 ára að aldri, eftir hann var stunginn í brjóstið af stingskötu í köfunarferð. Á þeim tíma voru börn hans, Bindi og Robert, aðeins átta og tveggja ára.

Bindi var gestur Söruh Grynberg í hlaðvarpsþættinum A Life of Greatness á dögunum þar sem hún lýsti fjölskyldulífinu. Í þættinum sagði Bindi að faðir hennar hefði þjáðst af gríðarlega miklu svefnleysi lengi vel áður en hann lést.

„Hann bókstaflega svaf aldrei,“ segir hún og bætir við að faðir hennar hafi vaknað eiginlega alla daga klukkan tvö um nótt. „Dagurinn hans byrjaði klukkan tvö og þegar vinnudagurinn hjá öðrum byrjaði var hann búinn með heilan vinnudag.“

Hún segir að hann hafi verið að vinna að allskonar dýralífsrannsóknum og hann hafi skrifað þúsundir blaðsíðna um niðurstöður sínar. Þessi skrif hans fundust nýlega þegar fjölskyldan var að fara í gegnum eigur hans ekki alls fyrir löngu.

Þó að Irwin hefði ekki verið formlega menntaður í náttúruvísindum var hann mikill áhugamaður um dýr og þekkti krókódíla betur en flestir.

„Fólk sá hann í sjónvarpinu sem þennan brjálæðislega ástríðufulla áhugamann um dýr en ég vildi að fólk hefði líka getað skyggnst inn í vísindalegu hliðina á honum.“

Eðlilega var það henni, átta ára stúlkunni, mikið áfall þegar faðir hennar lést og rifjar hún upp að henni hafi verið sagt að „tíminn lækni öll sár“.

„Ég hugsaði hvern fjárann það þýddi? Mun ég gleyma honum einn daginn? Þetta gerði mig smá hrædda og ég mæli með því að fólk segi þetta ekki við átta ára börn. Tíminn breytir sorginni, breytir því hvaða augum þú lítur á hana,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 4 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað