Elle hefur ekki tjáð sig áður opinberlega um þessa baráttu sína en í bókinni, sem Daily Mail vísar meðal annars til, kemur fram að hún hafi hafnað því að gangast undir lyfjameðferð og skurðaðgerð þrátt fyrir að alls 32 læknar hafi mælt með því fyrir hana.
Um var að ræða brjóstakrabbamein og kveðst fyrirsætan vera á góðum stað í dag og sjúkdómurinn verið í rénun undanfarin ár.
Í viðtali við Women’s Weekly segir Elle að það hafi verið áfall að greinast með krabbamein. „Ég var ringluð og þetta var ógnvekjandi á svo marga vegu en gaf mér um leið tækifæri til að leita inn á við til að finna lausn sem virkaði fyrir mig.“
Læknar mæltu með því að hún myndi gangast undir lyfjameðferð og skurðaðgerð þar sem brjóstið yrði fjarlægt. Þessu ákvað hún að hafna og reyna þess í stað óhefðbundnari og heildrænni leiðir sem eru þó býsna umdeildar.
Í viðtalinu segist hún hafa leigt sér hús í Phoenix í Bandaríkjunum í átta mánuði þar sem hún varði öllum sínum stundum í að hugleiða og hugsa um heilsuna. Naut hún dyggrar ráðgjafar frá einkalækni sínum, öðrum sérfræðingi í náttúrulækningum, osteópata og kírópraktors. Sem fyrr segir nefnir Elle að meinið hafi verið í rénun undanfarin ár.
Tekið er fram í umfjöllun Daily Mail að engin vísindaleg gögn styðji það að leiðin sem Elle ákvað að fara virki í raun og veru. Cancer Research UK hafi til dæmis bent á það að sumar „heildrænar leiðir“ geti verið skaðlegar heilsu fólks.
Hér má lesa umfjöllun Daily Mail um málið.