Íslenska kokkalandsliðið náði þeim frábæra árangri í vikunni að landa þriðja sæti á Ólympíuleikunum í matreiðslu sem fram fór í Stuttgart í Þýskalandi. Matreiðslumeistararnir komu til landsins í gær og að því tilefni var blásið til hófs þar sem að forsetahjónin, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, fögnuðu bronsliðinu frækna.
Sjá einnig: Íslenska kokkalandsliðið í 3. sæti á Ólympíuleikunum
Hópurinn sem fór til Stuttgart var leiddur af Ísaki Aroni Jóhannssyni fyrirliða en hann starfar hjá Zak veitingum og hefur mikla keppnisreynslu. Hann hefur verið í landsliðshópnum síðan 2019. Hann bar sigur úr býtum í keppninni um eftirrétt ársins 2022 og varð í fjórða sæti í keppninni um kokk ársins sama ár. Aðrir í hópnum eru:
Hugi Rafn Stefánsson, sjálfstætt starfandi, hefur staðið uppi sem sigurvegari í Íslensku nemakeppninni í matreiðslu og verið aðstoðarmaður í Bocuse´dor keppninni.
Úlfar Örn Úlfarsson, sjálfstætt starfandi, hefur keppt í keppninni um Eftirréttur ársins og verið í Bocude´dor teyminu.
Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir, Fjallkonunni, hefur tekið þátt í keppninni Eftirréttur ársins og verið í kokkalandsliðinu síðan 2021.
Gabríel Kristinn Bjarnason, Dill, sigraði keppnina Nordic Young Chef 2021, hefur náð þriðja sæti í keppninni um Kokkur ársins og unnið Íslensku nemakeppnina ásamt því að vera aðstoðarmaður í Bocuse´dor.
Kristín Birta Ólafsdóttir, Hótel Reykjavík Grand, fyrrum sigurvegari í Íslensku nemakeppninni og hefur tekið þátt í keppninni um Eftirréttur ársins ásamt því að lenda í þriðja sæti á Íslandsmóti iðngreina.
Jafet Bergmann Viðarsson, Torfús Retreat, hefur tekið þátt í keppninni Eftirréttur ársins og Matreiðslunemi ársins.
Bjarki Snær Þorsteinsson, Lux veitingar, hefur tekið þátt í keppnunum um eftirrétt ársins, Matreiðslunemi ársins og Nordic Green Chef.
Ólöf Ólafsdóttir, Head pastry chef – Monkeys, vann í keppninni um eftirrétt ársins 2021
María Shramko, Bakarameistaranum, er reynslubolti í keppnismatreiðslu en hún hefur unnið til fleiri en hundrað verðlauna á stórmótum og er viðurkenndur dómari.
Landsliðsþjálfarinn er einnig mikill reynslubolti í faginu en ásamt því að þjálfa landsliðið er Snædís Xyza Mae Jónsdóttir yfirkokkur á Ion Adventure. Hefur hún verið tengd landsliðinu síðan 2016 og var í landsliðshópnum sem náði þriðja sæti á síðustu Ólympíueikum, ásamt því meðal annars að keppa í Kokkur ársins, standa uppi sem sigurvegari í Eftirréttur ársins 2018 og vinna Artic Chef keppnina á Akureyri á þessu ári.