fbpx
Laugardagur 21.júní 2025
Fókus

Gagnslaust að svipta hertogahjónin titlum því þá yrði Meghan sjálfkrafa prinsessa

Fókus
Þriðjudaginn 4. júní 2024 13:30

Meghan Markle Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heyrst hefur að Karl Bretakonungur og Vilhjálmur krónprins hafi rætt um að svipta mögulega hertogahjónin, Harry prins og Meghan Markle, konunglegum titlum sínum. Þar með væri hægt að koma í veg fyrir að hertogahjónin séu að nota konunglega titla sér til framdráttar. Karl og Vilhjálmur munu vera ósáttir við að hertogahjónin séu að afla sér peninga og frægðar með því að tala illa um aðra meðlimi fjölskyldunnar.

Konunglegi sérfræðingurinn Kinsey Schofield deilir því þó með Fox fréttastofunni að það sé með öllu tilgangslaust að svipta hertogahjónin titlum. Harry sé fæddur prins og ekki hægt að svipta honum þeim titli. Hann og Meghan fengu konunglegu titlana hertogahjónin af Sussex þegar þau giftu sig en verði þau svipt þeim titlum þá standi eftir að Harry sé prins og Meghan verði sjálfkrafa prinsessa.

„Mörgum okkar finnst eins og Harry og Meghan séu að misnota titla sína og okkur þætti maklegt að þau yrðu svipt þeim, en það er ekki samtal sem Karl konungur og Vilhjálmur prins hafa átt undanfarið. Það er nefnilega tæknilega svo, og Karl og Vilhjálmur vita það, að ef Harry og Meghan eru svipt titlunum hertogi og hertogaynja, þá verða þau sjálfkrafa prinsinn og prinsessan Henry. Það er ekki hægt að svipta Harry prinsatitlinum. Það er blóði borinn réttur hans. Það myndi krefjast aðkomu þingsins til að svipta hann þeim titli og slíkt er í engum forgangi hjá þinginu á þessum tíma. Þú myndir þá líka sjá Harry og Meghan notfæra sér titlana prins og prinsessa sem ætti að vera auðveldara fyrir þau að markaðssetja í Bandaríkjunum.“

Harry heitir réttu nafni Henry Charles Albert David prins. Meghan yrði þá þekkt sem prinsessan Henry samkvæmt konunglegri hefð. Tæknilega gildi sama um Katrínu prinsessu sem heiti prinsessa Vilhjálmur eftir að hún giftist inn í fjölskylduna árið 2011. Hún er þó betur þekkt sem prinsessan af Wales.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk
Fókus
Fyrir 4 dögum

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 1 viku

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir
Fókus
Fyrir 1 viku

Aðdáendur hneykslaðir á Sabrinu Carpenter – „Þú ert að niðurlægja þig“

Aðdáendur hneykslaðir á Sabrinu Carpenter – „Þú ert að niðurlægja þig“