fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fókus

Systir Ásdísar Ránar lenti í útistöðum við búlgörsku mafíuna – „Hann var með byssu báðum megin“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 1. febrúar 2024 13:54

Systurnar Ásdís Rán og Hrefna Sif.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Glamúrfyrirsætan og athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir segir frá því þegar systir hennar, Hrefna Sif Gunnarsdóttir, lenti í útistöðum við meðlimi búlgörsku mafíunnar.

Þær voru í fínu teiti í Búlgaríu þegar það gerðist.

„Það móðgaði einhver mig, einhver eldri maður,“ segir Ásdís Rán í nýjasta þætti af Götustrákum á streymisveitunni Brotkast.

„Hann var eitthvað að skjóta á mig og systir mín bara [upp með klærnar] og fór að rífa kjaft við hann. Ég sagði við hana: „Hrefna, haltu kjafti. Bara slakaðu á, ekki gera neitt. Þú veist ekki hver þetta er.“ Ég vissi alveg hver þetta var,“ segir hún, en um var að ræða meðlim búlgörsku mafíunnar.

„Og hún fór eitthvað að rífa kjaft og hann var með byssu báðum megin og hún hélt áfram: „Hver heldurðu að ég sé? Ég er frá Íslandi.“ Hún bara hélt áfram og gerði ennþá meira vesen. Þeir voru ekki vanir að það væri einhver lítil títla, einhver skvísa, að rífa kjaft við þá. Þeir sátu með tíu Playboy-fyrirsætum sem sátu bara [þegjandi] og þorðu ekki að hreyfa sig.“

Ásdís segir að systir hennar hafi haldið áfram að rífa kjaft. „Það endaði með því að þeir voru allir svo hrifnir af henni, þeir voru komnir yfir [til okkar] því þeim fannst svo spennandi að það væri einhver kona að rífa kjaft við þá. Hún var bara að úthúða þeim,“ segir hún.

„Ég var bara að svitna, erum við að fara að deyja núna? En þeir virtu þetta.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Starfsmaður skemmtiferðaskips birti mynd af launaseðlinum sínum

Starfsmaður skemmtiferðaskips birti mynd af launaseðlinum sínum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur gagnrýnir „ofurfyrirsætusnarlið“ sem fer sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum

Ragnhildur gagnrýnir „ofurfyrirsætusnarlið“ sem fer sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Elma lýsir daglegu lífi í Ástralíu – Þessu furðar hún sig mest á í umferðinni

Elma lýsir daglegu lífi í Ástralíu – Þessu furðar hún sig mest á í umferðinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn fékk áfall þegar rasísk mynd af honum frá háskólaárunum kom upp á yfirborðið – „Ég get ekki flúið fortíðina“

Þorsteinn fékk áfall þegar rasísk mynd af honum frá háskólaárunum kom upp á yfirborðið – „Ég get ekki flúið fortíðina“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sunneva gerði snarlið sem ofurfyrirsæturnar elska

Sunneva gerði snarlið sem ofurfyrirsæturnar elska
Fókus
Fyrir 4 dögum

Segja frá djúpri tengingu tveggja einstaklinga sem er sönn og óumflýjanleg

Segja frá djúpri tengingu tveggja einstaklinga sem er sönn og óumflýjanleg