fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fókus

Magnús var sendur í ómskoðun og ekki hefði mátt tæpara standa -„Já ég var næstum því bara steindauður“

Fókus
Miðvikudaginn 14. júní 2023 18:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður á Stöð 2 er án efa einn ástsælasti sjónvarpsmaður þjóðarinnar. Hann hefur skotið föstum rótum á Selfossi og hefur haldið heiðri landsbyggðarinnar á lofti í fréttaflutningi sínum sem jafnan er jákvæður og fræðandi.

En hvaða maður er þetta eiginlega? Magnús Hlynur mætti í Bítið á Bylgjunni í morgun og gaf þjóðinni innsýn inn í líf sitt. Þar sagðist Magnús elska starf sitt og vita fátt betra en að afla frétta.

„Elska þetta starf. Hitta fólk, spjalla, forvitnast, vera ýtinn, vera svolítið skemmtilegur. Allt þetta.“

Ætlaði að verða bóndi

Sjálfur kemur hann frá Suðurnesjunum og ætlaði framan að að verða bóndi. Fór hann í Bændaskólann og vonaðist til að finna þar jafnvel ástina.

„Ég ætlaði að verða bóndi. Ég fór náttúrulega í bændaskólann á Hvanneyri og ætlaði að ná mér í sveitastelpu með mikinn kvóta, ríka foreldra og stóra jörð. Það var svona draumurinn. Svo var bara einhvern hjúkka á Selfossi sem ruddist þarna inn og tók mig í staðinn – breytti öllu.“

Vísar Magnúr þar til eiginkonu sinnar, Önnu Margrétar Magnúsdóttur, sem stal hjarta hans og kom þessum Suðurnesjamanni á Selfoss. Þar segist Magnús vera alsæll með lífið, þó svo að það blundi alltaf bóndi í honum – en eiginkonan er meira fyrir malbikið svo líklega verður bóndadraumurinn bara draumur um ókomna tíð. Á sínum sokkabandsárum fór Magnús í sveit á sumrin og þar kviknaði áhuginn og elskar hann fátt meira en sveitina.

„Þegar menn eru að bera skítinn á túnin á vorin í kringum Selfoss. Ahhh I love it.“

Dansar skottís og spilar á harmonikku

Magnús Hlynur er þó ekki bara fréttamaður, heldur mætti kalla hann þúsundþjalasmið. Hann er garðyrkjufræðingur, eftir nám í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi, elskar plöntur og fær útrás fyrir þessa ástræðu með því að klippa um hundrað garða á Selfossi. Hann segir líka að hans garður sé með þeim glæsilegri, enda fátt betra en að fara í fallega garða og skoða.

Hans sérgrein á heimilinu er að brjóta saman þvottinn. Hann hefur orðið Íslandsmeistari í bæði körfubolta og gömlu dönsunum, syngur í karlakór og er meðlimur í rótarýklúbb Selfoss. Svo spilar hann á harmonikku og blokkflautu, þó ekki opinberlega.

En hann á engin dýr. Hann er þeirrar trúar að hundar eigi heima í sveitinni og segir að einn sonur hans hafi sagt við hann einn daginn: Ég hlakka svo til þegar þú deyrð. Þegar sonurinn var beðinn um að útskýra þessa yfirlýsingu fylgdi það sögunni að þá gæti sonurinn fengið sér hund.

Magnús byrjar alla daga á því að fara í sund þar sem hann syndir 40 ferðir og ræðir málefni stundarinnar í heita pottinum í góðra vina hóp. Síðan fer hann í göngu með gönguhóp sínum, en þeir ganga um 4-5 kílómetra á degi hverjum. Félagarnir í hópnum eru þó tveimur til þremur áratugum eldri en Magnús en hann segir að sér líki einstaklega vel við eldri borgara

„Ég elska gamalt fólk, ég elska eldri borgara, þetta er svo yndislegt fólk og við löbbum 4-5 km saman á hverjum degi spjöllum, hlæjum og gerum grín.“

Gönguhópurinn á sér langa sögu en fyrir um 20 árum síðan uppgötvaði Hermann nokkur að sér dauðleiddist að synda og ákvað að fara frekar í göngutúr. Síðan slógust fleiri í för með honum þar til um formlegan hóp var að ræða. Hermann er nú látinn og hefur hópurinn verið skýrður Gönguhópur Hermanns honum til heiðurs.

Magnús segist vera mikil félagsvera, hann hafi ekki getað hugsað sér að stunda hreyfingu aleinn heldur verði hann að hafa einhvern til að spjalla við að hlæja með. Því hafi hópurinn verið fullkominn félagsskapur.

Magnús á fjóra syni, sem allir voru getnir á fimm ára fresti. Hann segist þó ekki kunna uppskriftina að stúlku. Hann á að auki tvö barnabörn, bæði drengir.

Lenti í bráðri lífshættu

Fyrir átta árum lenti Magnús þó í lífshættu, og hefði illa getað farið. Hann segir heilbrigðiskerfið á Íslandi frábært, en það hafi gripið hann og bjargað honum.

„Já ég var næstum því bara steindauður árið 2015. Ég var með of háan blóðþrýsting og fór til læknis, Óskars Reykdalssonar, sem er framkvæmdastjóri lækninga hér á höfuðborgarsvæðinu, en var læknir á Selfossi. Hann setti mig á blóðþrýstingslyf, við náðum blóðþrýstingnum niður og allt í góðu standi en hann vildi til öryggis senda mig í hjartaómun í lok meðferðarinnar. Ég fór í hjartaómun hjá Atla Einarssyni, hjartalækni sem var þá á Selfossi. Hann ómar mig og hvað sér hann? Það er gúlpur á ósæðinni. Risagúlpur, kominn í 5,6 og ef hann fer upp í 6 þá springur hann og þá deyrðu einn,tveir og þrír. Þannig ég fór í opna hjartaaðgerð á Landspítalanum. Vika sofandi á gjörgæslu og var svo einhverjar fimm sex vikur þarna, fór svo á Reykjalund og allt hefur gengið vel síðan.“

Magnús segist eftir þetta vera þakklátari fyrir lífið. Hann hafi þurft að taka upp heilbrigðari venjur, hann hafi verið of þungur og þurft að gera eitthvað í því. Hann segir þó nauðsynlegt að leyfa sér einstaka sinnum. En aðspurður um uppáhalds matinn svarar Magnús að hann viti ekkert betra en gamaldags mat.

„Hrossabjúgu með grænum baunum og kartöflumús,“ sagði Magnús um uppáhaldið og bætti við að í gær hafi hann og kona hans soðið slátur og með því.

Magnús segist hafa lítinn áhuga á neikvæðum fréttum og vill hann helst fjalla um jákvæða hluti og að sjálfsögðu vekja athygli á landsbyggðinni þar sem sé að finna skemmtilegt og harðduglegt fólk sem fagni því að fjölmiðlar sýni þeim athygli.

Landsmenn geta því búist við Magnús haldi áfram að flytja þeim jákvæðar og áhugaverðar fréttir en hann er í lok sumars að fara að taka upp aðra þáttaröð af þáttum sínum Mig langar að vita, sem hafi vakið mikla lukku.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Bianca Censori í nærfötum úr nammi á götum New York

Bianca Censori í nærfötum úr nammi á götum New York
Fókus
Í gær

Leikkonan kemur sambandinu til varnar – Nýja kærastan 18 árum yngri

Leikkonan kemur sambandinu til varnar – Nýja kærastan 18 árum yngri
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ef þú þorir er lag um það að taka fyrsta skrefið

Ef þú þorir er lag um það að taka fyrsta skrefið
Fókus
Fyrir 6 dögum

Bergur Þór: „Mér leið eins og þetta væri eina leiðin út“

Bergur Þór: „Mér leið eins og þetta væri eina leiðin út“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Birgitta samdi lag um ungan mann sem varð úti á Laugavegi – 11 árum seinna hitti hún bróður hans – „Veistu það, ég fékk svo mikla gæsahúð“

Birgitta samdi lag um ungan mann sem varð úti á Laugavegi – 11 árum seinna hitti hún bróður hans – „Veistu það, ég fékk svo mikla gæsahúð“