Annað árið í röð verður nú hægt að kaupa jóladagatal með íslensku matarhandverki. Salan gekk vonum framar í fyrra og fengu færri en vildu.
„Þetta er alveg nýtt dagatal, sérvaldar vörur eins og í fyrra en ekki sömu vörurnar – enda af nógu að taka því það er stórsókn í framleiðslu og vöruþróun hjá íslenskum smáframleiðendum,“ segir Hlédís Sveinsdóttir, annar aðstandandi Matarmarkaðar Íslands í Hörpu og fyrrverandi formaður Beint frá Býli. Hún sér um útgáfu dagatalsins ásamt Dóru Svavarsdóttur, matreiðslumeistara og fyrrum formanni Slow food á Íslandi.
„Það er bara takmarkað magn í boði því við erum að safna saman vörum frá smáframleiðendum alls staðar að af landinu,“ segir Hlédís. Meðal þess sem má finna í dagatalinu er jólate, blómahlaup og rabarbarasýróp.
DV ræddi einnig við Hlédísi í fyrra þegar fyrsta íslenska matarjóladagatalið kom út. Hún var þá mjög spennt og sagði: „Þetta er það sniðugasta sem mér hefur dottið í hug á ævinni. Samt hefur mér dottið margt sniðugt í hug,“ sagði hún þá.
Sjá einnig: Selur jóladagatal með íslensku matarhandverki – „Það sniðugasta sem mér hefur dottið í hug á ævinni“
Í ár er bæði jóladagatal með 24 gjöfum og svo aðventudagatal með 4 gjöfum þar sem tvær vörur sem passa vel saman eru í hverjum glugga. Hlédís segir aðventudagatalið líka henta vel sem starfsmannagjöf. Hún segir dagatölin kosta sitt en það sé algjörlega þess virði.
„Það er eitthvað fyrir alla í dagatalinu og ekki allt er ætt, en meðal þess sem ekki er til átu má nefna bývaxkrem og súkkulaðisápu. Ef við skoðum til dæmis aðeins súkkulaðisápuna þá er hún unnin af Verandi í samstarfi við Omnom og er með kakóhýðinu sem fellur til þegar súkkulaði er unnið. Bæði Verandi og Omnom eru smáframleiðendur og frumkvöðlar og þarna er verið að nota hráefni sem annars færi forgörðum. Úr verður þessi dásamlega vara sem súkkulaðisápan er. Nei, í alvöru! Hver vill ekki baða sig upp úr súkkulaði?“ spyr Hlédís.
Á Facebooksíðunni Jóladagatal – íslenskt matarhandverk er hægt að fá upplýsingar um hvernig hægt er að panta dagatal.
Þeir sem vilja EKKI vita nákvæmlega hvaða vörur verða í dagatalinu skulu hætta að lesa núna. Aðrir mega gjarnan lesa áfram.
Jóladagatal 24 gluggar:
Lava cheese – Bacon/ sour cream/onion 60g
Holt og Heiðar – Birkisíróp 50 ml
Rabarbía – Kramarhús 20 gr
Litlu jólahúsin – Piparkökuhús 2 stk
Litabombur – Litabombur 20 stk
Hafsalt – Rauðvínssalt 35 g
Súkkulaði fyrir sælkera – Súkk. m/rúsínum og kanill 85 gr
Kaffibrugghúsið – Kaffi 3 p.
Svava Sinnep – Sinnep 2 x 50g
Næra – Skyr snakk 25 g
Ás styrktarfélag – kubbakerti 1 stk
Urta icelandia – Jólateblanda 10 pokar
Kandís – Birki- og eplabrjóstsykur 50 gr
Hrísakot – Geitasápa 1 stk
Háafell – Blómahlaup 40 gr
Verandi – Súkkulaðisápa 80 gr
Dorolu – Jólamöndlur 75 gr
Fanney – Krem úr bývaxi
Fanney – Rabarbarasýróp m/engifer, chilli og vanillu
Kaja organic – Hátíðargrautur með trönub. og möndlum 70 gr
Móðir Jörð/Havarí – Bopp 1 pakki
Móðir Jörð – Rautt byggotto 140 gr
Og natura – Dry gin 50ml
Íslensk Hollusta – Hrútaberjahlaup 100 gr
Aðventudagatal 4 gluggar:
Súkkulaði fyrir sælkera – Súkk. m/rúsínum og kanill 85 gr
Kaffibrugghúsið – Kaffi 3 p.
Móðir Jörð/Havarí – Bopp 1 pakki
Íslensk Hollusta – Hrútaberjahlaup 100 gr
Litlu jólahúsin – Piparkökuhús 2 stk
Urta icelandia – Jólateblanda 10 pokar
Ás styrktarfélag – kubbakerti 1 stk
Verandi – Súkkulaðisápa 80 gr