Írski stjörnukokkurinn Rachel Allen opnar sig um samband sitt við „ótrúlega“ móður sína í viðtali við RSVP Magazine. Móðir Rachel er hin íslenska Hallfríður Reichenfeld og faðir hennar er írskur, Brian O‘Neill.
„Hún er alveg ótrúleg mamma, virkilega yndisleg og róleg. Hún er líka mjög skemmtileg, bara það að vera í kringum hana lætur manni líða betur,“ segir hún.
„Mamma spáir ekki í litlu hlutnum. Það hafa komið tilfelli þar sem ég hef verið í einhvers konar krísu og leitað til hennar og hún hjálpaði mér að setja hlutina í samhengi og að átta mig á því að aðstæður eru ekki jafn erfiðar og ég taldi í fyrstu.“
Stjörnukokkurinn ólst upp hjá foreldrum sínum í Foxrock í Dublin og viðurkennir að hún sé mjög heppin að móðir hennar sé enn á lífi. „Því ég veit að margir hafa misst mæður sínar og það er mjög sorglegt,“ segir hún.
„Það frábæra er að mamma er í góðu formi, heilbrigð og spilar tennis og golf. Hún fer líka í hádegismat með vinkonum sínum og lifir lífinu til hins fullnustu.“
Stjörnukokkurinn segist reglulega fá að heyra hversu lík hún er móður sinni. „Fólk segir að við séum mjög líkar og við tölum eins, en systir mín gerir það líka. En ég er einnig lík pabba, eins og hversu viðkvæm ég er varðandi suma hluti,“ segir hún.
Rachel hefur ekki heimsótt Ísland í nokkur ár en er spennt að koma aftur.
„Ég er alveg undir einhverjum áhrifum frá Íslandi, án þess að hafa áttað mig á því fyrr en einhver benti mér á það. Eins og ég elska norræna og skandinavíska hönnun, ég elska bragðið af matnum þeirra, sérstaklega af súrum gúrkum og fiski, þó svo ég hafi ekki alist upp við að borða það,“ segir hún.
„Ég myndi elska að fara aftur til Íslands, við fórum þangað reglulega þegar ég var barn en hef ekki farið í mörg ár.“