Sigga Dögg kynfræðingur og kærasti hennar fóru á kynlífsklúbb í Edinborg í Skotlandi á dögunum. Kynfræðingurinn greindi frá því á Instagram og sagðist þau hyggjast ætla að fara aftur um helgina, þar sem það er öðruvísi stemning á laugardegi og virkum degi.
Hún gefur nokkur góð ráð fyrir forvitna um swingsenuna og kynlífsklúbba í Story á Instagram. Það er hægt að hlusta á það allt hér.
Sigga Dögg hefur lengi getið sér gott orð sem kynfræðingur og fyrirlesari. Hún er einnig höfundur og gaf nýlega út netnámskeið fyrir foreldra til að tala um kynlíf við börnin sín á öllum aldri.
„Athugið, ykkur sem langar að prufa. Æfið ykkur í hlutverkaleik, æfið ykkur að setja mörk, virða mörk og tala saman um hver má hvað við hvern og grípið afbrýðissemi,“ segir Sigga Dögg og fer síðan yfir hvernig áhugasamir geta tekið sín fyrstu skref.
Hún nefnir tvær vefsíður. „Gott er að byrja að skrá sig á spjallsíður. Ísland og Evrópa: SDC. Bretland og enskumælandi lönd: Fabswingers,“ segir hún.
Algeng spurning sem Sigga Dögg fær er hvar maður finnur svona klúbb.
„Ég hef oft bent á þessar síður, SDC er mjög vinsæl á Íslandi. Þegar við fórum inn á þennan klúbb kom í ljós að Fabswingers er mjög vinsæl hér,“ segir Sigga Dögg.
„Fyrsta er oft að skrá sig inn á svona síðu. Búa til prófíl og svo byrja að spjalla […]Spjallið er eitt, og svo er hægt að finna klúbba með því að gúggla en líka oft inni á þessum síðum er hægt að sjá hvar eru klúbbar og umsagnir um klúbb. Mæli með að lesa umsagnirnar. Svo þarf oft að skrá sig á klúbbana og láta vita að maður ætlar að koma,“ segir hún.
„Og svo myndi ég segja ef þú ætlar á klúbb að fara alveg edrú, með væntingarstjórnunina í lagi. Allt í lagi að fá þér einn drykk en ekki verið ölvaður/ölvuð/ölvað. Vertu með væntingarstjórnun í lagi. Kannski ákveða að bara fara að skoða og vera, sjá hvernig stemningin er. Ekki ákveða hvernig þetta á að vera. Heldur bara fylgjast með,“ segir hún.
„Svo eru oft hlutlaus svæði til að tala saman og taka stöðuna.“ Hún nefnir sem dæmi að ef par fer á kynlífsklúbb og byrjar að finna fyrir afbrýðissemi, að fara afsíðis og ræða málin.
„Kynlífið getur verið alls konar, þetta getur verið mega hópasenur, mörg pör, eitt par. Öll kynjasamsetning, öll flóran af fólki. Það eru alveg krúttlegir hlutir þarna eins og að þakka fyrir fullnægingu með því að kyssa á ennið, það eru strokur, beðið eftir samþykki, tjékkað hvort eitthvað sé í lagi,“ segir hún og fer nánar út í þetta í Story á Instagram sem má horfa á hér.
„Ég held að kurteisin komi ykkur á óvart […] Það sem mér finnst svo fallegt við þetta er að fólk er komið saman til þess að njóta […] Ég ætla ekki að segja að þetta sé fullkominn heimur. Það er alveg óheiðarleiki þarna,“ segir Sigga Dögg og bætir við að þetta sé ótrúlega góð æfing í að setja mörk.