fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Hryllingshús stjörnunnar selt á 220 miljónir – Kynlífssértrúarsöfnuður starfræktur innan veggja þess

Jón Þór Stefánsson
Laugardaginn 19. júní 2021 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimili tónlistarmannsins R. Kelly hefur verið selt á 1.8 milljón Bandaríkjadali, en það jafngildir um það bil 220 miljónum íslenskra króna. Líkt og flestir vita hafa fjölmargar konur stigið fram á síðustu árum og opnað sig um ofbeldi poppstjörnunnar gagnvart sér. R. Kelly bíður nú dóms, en í umræddu húsi eiga fjölmörg brota hans að hafa átt sér stað. The Sun greinir frá.

Í húsinu á að hafa verið starfræktur einskonar kynlífssértrúarsöfnuður, þar sem Kelly réð ráðum og ríkjum. Þar hafi þolendur hans dvalið og verið neyddir til að taka þátt í kynlífsathöfnum, eins og orgíum.

Nokkrar konur hafa lýst dvöl sinni í húsinu. Asante McGee sagði við BBC„Þegar ég var ein í herberginu mínu hringdi ég heim og talaði við börnin mín, en þegar ég var með Robert [R. Kelly] þá vildi hann ekki að við værum með síma eða hefðum samband í heiminn að utan,“

Hún sagði jafnframt: „Um leið og ég flutti inn hóf hann að beita andlegu og líkamlegu ofbeldi.“ Einnig segir hún hann hafa stjórnað lífi sínu algjörlega: „Hann stjórnaði því hvenær við mættum nota salernið, eða fara út úr herbergjunum okkar,“

Í raun leigði R. Kelly húsið, en í byrjun mánaðarins var það selt á 1.8 milljón Bandaríkjadali. Af myndum að dæma má þar finna mörg svefnherbergi, nokkrar borðstofur, sundlaug, heitan pott, líkamsrækt, stóra innkeyrslu og fleira.

R. Kelly bíður nú dóms, en hann neitar öllum ásökunum sér á hendur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt