Libbie Mugrabi, fyrrverandi eiginkona bandaríska milljarðamæringsins David Mugrabi, vill enduropna skilnaðarmálið. Hún sakar hann um að hafa viljandi eyðilagt listaverk, meðal annars málverk eftir Jean-Michel Basquiat og Andy Warhol sem hann átti að láta hana fá samkvæmt dómsúrskurði.
Skilnaður Libbie og David hefur gjarnan verið kallaður „illgjarnasti“ (e. nastiest) skilnaður New York. David er listverkasali og eru fyrrverandi hjónin hluti af efri stéttar elítu stórborgarinnar.
Dómari hæstaréttar Manhattan dæmdi í máli þeirra í apríl og áttu þau að skipta á milli sín málverkjum og bílum. En Libbie heldur því fram að fyrrverandi eiginmaður hennar hafi brotið gegn úrskurðinum og hafi viljandi eyðilagt málverk metin á tæplega tvo milljarða.
Hún segist einnig ekki geta viðhaldið lífsstílnum sem börnin þeirra eru vön en hún fær andvirði tæpra tíu milljóna króna, nánar tiltekið 9,6 milljónir, í meðlag í hverjum mánuði. Hún vill að meðlagið verði hækkað í 12 milljónir króna á mánuði.
Libbie krefst þess að dómstóllinn ógildi núverandi samning og það verði byrjað upp á nýtt í samningsviðræðum.
Líkir sér við Díönu Prinsessu
Fjölskylda David á mörg hundruð milljarða í listmunum, meðal annars stærsta safn listaverka eftir Andy Warhol.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fyrrverandi hjónin rífast yfir listmunum. Á meðan skilnaðinum stóð greindi Libbie frá því að þau hefðu eitt sinn „slegist“ yfir 60 milljón króna skúlptúr og að David hefði ýtt henni út um dyrnar og öskrað að hún væri „gold-digger“ eða gullgrafari.
Í nýlegu viðtali við New York Post líkti Libbie sér við Díönu prinsessu.
„Ég var eins og hún, ég giftist ung. Mér var sagt hvað ég ætti að gera og hverju ég ætti að klæðast […] Það er verið að stjórna þér og það skiptir engu máli hvað er sanngjarnt eða hvað þú átt skilið,“ sagði hún.
Samkvæmt dómskjölum er Libbie atvinnulaus.