fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Átta atriði sem ég lærði af Katrínu Tönju

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 24. janúar 2021 22:00

Katrín Tanja. Mynd/Stefán Karlsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

CrossFit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir gaf nýlega út bókina Dóttir – Leið mín til tveggja heimsmeistaratitla í CrossFit. Bókin er frábær fyrir CrossFit-iðkendur sem og annað íþróttafólk. Allt sem ég lærði er hugarfarslegt, enda sýnir Katrín Tanja að líkamleg geta kemur þér aðeins hálfa leið, hugarfarið kemur þér yfir lokalínuna.

Ráð Katrínar Tönju eiga þó ekki aðeins við íþróttafólk eða íþróttaiðkendur. Allir geta tekið þessi ráð og innleitt þau í daglegt líf.

Mynd/Forlagið

1. Ráð eru ómetanleg

Í fjórtánda kafla rifjar Katrín Tanja upp heimsleikana í CrossFit árið 2016. Það voru margar erfiðar greinar það árið, eins og raunar hvert ár, en stundum kemur fyrir að það eru nýjar æfingar sem hafa aldrei verið í keppni áður. Í einni greininni átti Katrín Tanja að velta gríðarstórum sívalningi sem lá á hliðinni og var hálffullur af sandi. Óspurður gaf æfingafélagi hennar og CrossFit-stjarnan Mat Fraser henni ráð sem nýttist henni afar vel í keppninni.

Seinna á heimsleikunum gerði Katrín Tanja mistök í keppninni og var mjög vonsvikin og reið. En eftir að hafa fengið góð ráð frá bæði þjálfaranum sínum og öðrum keppanda, Cole Sager, þá leit hún atburði dagsins allt öðrum augum og var upptendruð í lok dags, reiðubúin að gefa allt í lokadaginn. Hún endaði með að vinna heimsleikana það árið, annað árið í röð.

Þetta sýnir að það er í lagi að þiggja og biðja um ráð. Maður er nefnilega ekki sjálfur alltaf með svörin og það er engin skömm að því að viðurkenna það. Ráð geta verið ómetanleg.

2. Af hverju?

Þú verður að finna út af hverju þú ert að gera það sem þú gerir. Þú verður að vita af hverju þú ert að æfa á hverjum degi, þú verður að vita af hverju þú liggur lafmóð á gólfinu eftir hverja æfingu. Ef þú ert ekki með neina ástæðu er erfitt að gefa sig alla í þetta.

Sama gildir með allt annað sem þig langar að afreka, bæði lítið og stórt. Um leið og þú finnur ástæðuna, og í senn drifkraftinn, þá gengur þér miklu betur.

Mynd/Forlagið

3. Viðhorf eru ekki endanleg

Í bókinni talar Katrín Tanja um þroska sinn sem íþróttakonu. Hún rifjar upp erfið augnablik þar sem hún, að eigin sögn, tók frekjukast á æfingu því eitthvað fór úrskeiðis eða hún stóð sig ekki eins og hún vildi.

Það tók hana tíma, æfingu og sjálfsvinnu að breyta viðhorfi sínu og seinna mætti hún svipuðum aðstæðum með allt öðrum viðbrögðum. Þó að maður geti ekki stjórnað aðstæðum þá getur maður stjórnað viðbrögðum sínum og það skiptir miklu máli hvernig maður ákveður að bregðast við erfiðleikum og mótlæti.

Katrín Tanja sýnir að það er hægt að læra, þroskast og breyta viðhorfi. Ekkert er endanlegt.

4. Haltu áfram

Katrín Tanja hefur tileinkað sér hugsunarháttinn að halda áfram í stað þess að stoppa ekki. Þegar hún er að fara í gegnum mjög erfiða æfingu eða er að keppa og líkaminn er að öskra, þá segir hún við sjálfa sig: „Haltu áfram“ í stað „ekki stoppa“. Að stoppa er ekki í myndinni.

Katrín Tanja með fjölskyldu sinni og þjálfara. Mynd/Forlagið

5. Jafnvel meisturum getur liðið illa

Katrín Tanja opnar sig um erfiðleika á mjög einlægan hátt. Hún segir hreinskilnislega frá þroskasögu sinni sem íþróttamanns, hvernig henni tókst að breyta viðhorfi sínu og hegðun í átakanlegum aðstæðum. Hún segir frá þunglyndi sem hún glímdi við ári eftir að hún varð heimsmeistari. Hún segir frá tímanum þar sem hún tapaði lönguninni til að æfa, ástríðunni sem hafði keyrt hana áfram öll þessi ár. Hún segir frá viljanum sem fór í að byrja að vinna í sjálfri sér og komast loks aftur á rétta braut, sem leiddi til þess að hún komst á verðlaunapall ári seinna á heimsleikunum.

Katrín Tanja sýnir okkur að öllum getur liðið illa, meira að segja heimsmeisturum og hraustustu konu í heimi.

6. Þakklæti

Það sem hjálpaði Katrínu Tönju var að efla vitund sína um þakklæti. Hún fékk bókina The Five-Minute Journal. Á hverjum degi skrifaði hún í bókina þrjú atriði sem hún var þakklát fyrir. Til viðbótar skráði hún þrjú atriði sem hún vildi tileinka sér, það sem hún hafði lært þann daginn og nokkur atriði sem hefðu getað farið betur.

Að æfa þakklæti hjálpaði Katrínu Tönju gríðarlega og sýnir það að við gætum öll sýnt meiri þakklæti. Það er gott að hugsa hvað í lífi okkar við höfum til að vera þakklát fyrir, frekar en hvað okkur skortir.

Katrín Tanja og Annie Mist. Mynd/Forlagið

7. Vinátta fer í gegnum súrt og sætt

Ein besta vinkona Katrínar Tönju er Annie Mist Þórisdóttir, sem kom Íslandi á kortið í CrossFit. Þegar Katrín Tanja var að kynnast CrossFit kynntist hún Annie Mist, þær æfðu mikið saman og urðu fljótt góðar vinkonur. Eftir að Katrín Tanja tók erfiða ákvörðun árið 2012 um að fylgja ekki Annie á nýja CrossFit-stöð slitnaði upp úr vináttu þeirra. Þær töluðust ekki við um stund og viðurkennir Katrín að hún sjái eftir að hafa ekki farið með Annie. Í dag eru þær bestu vinkonur, æfingafélagar og keppinautar.

Saga Katrínar Tönju og Annie Mist sýnir að í vináttu, rétt eins og öðrum samböndum, er hægt að ganga í gegnum bæði súrt og sætt. Góð og falleg vinátta á skilið annað tækifæri.

Amma Katrínar Tönju var hennar stærsti aðdáandi. Mynd/Forlagið

8. Fjölskylda skiptir máli

Katrín Tanja er mjög náin fjölskyldu sinni, sérstaklega ömmu sinni og afa. Hún opnar sig um sáran missi sem hafði mikil áhrif á hana. Amma hennar lést eftir stutta baráttu við hvítblæði. Amma hennar var bæði besta vinkona hennar og hennar stærsti aðdáandi. Sorgin var Katrínu Tönju mikið áfall og tók það hana langan tíma að geta rætt um hana.

Í dag er amma hennar alltaf með henni, áður fann hún sterkt fyrir nærveru hennar á áhorfendapöllunum, hvort sem hún var þar eða ekki. Nú finnur hún fyrir nærveru hennar á keppnisvellinum. Þegar Katrín Tanja vann seinni heimsleikana var hún með hálsmen sem minnti hana á ömmu sína. Minningin um ömmu hennar kom henni í gegnum erfiðustu kaflana og var sigurinn tileinkaður ömmu hennar.

„Ég hafði nýja og sterkari ástæðu til að berjast: Ömmu. Hún hafði fylgt mér í gegnum þetta. Hún hafði hjálpað mér að berjast til hins ýtrasta. Sigurinn var miklu þýðingarmeiri vegna hennar.“

Sorgir og sigrar Katrínar Tönju sýna hvað fjölskylda skiptir miklu máli og hvað ástin er sterk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar