fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Stærstu hneyksli konungsfjölskyldunnar upp úr aldamótum

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 16. janúar 2021 10:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er erfitt fyrir meðlimi bresku konungsfjölskyldunnar að hnerra vitlaust án þess að það komi fram í fjölmiðlum, svo mikil er athyglin á þeim. Þegar upp koma hneyksli innan konungsfjölskyldunnar er púðrið ekki sparað og má sjá fréttir af nýjasta skandalnum á forsíðum bresku pressunnar.

Hér að neðan má lesa um stærstu hneyksli konungsfjölskyldunnar síðustu tvo áratugi.

Meðferðarstofnunin sem Harry heimsótti. Mynd/Getty

2002 – Harry Bretaprins í meðferð

Þegar Harry Bretaprins var sautján ára viðurkenndi hann fyrir föður sínum að hann hefði prófað kannabis. Prinsinn eyddi einum degi á meðferðarstofnun í London. Í yfirlýsingu frá konungsfjölskyldunni kom fram að Harry hefði samþykkt að heimsækja meðferðarstofnunina „til að læra um mögulegar afleiðingar þess að byrja að nota kannabis“.

Forsíða The Sun.

2005 – Nasistabúningur

Það er erfitt að gleyma einum stærsta skandal konungsfjölskyldunnar, þegar Harry Bretaprins fór í búningapartí klæddur sem nasisti. Breska blaðið The Sun birti mynd af Harry á forsíðunni. Harry var tvítugur og gaf fljótlega út yfirlýsingu þar sem hann baðst afsökunar á gjörðum sínum.

Kate Middleton. Mynd/Getty

2012 – Kate Middleton í sólbaði

Á sama tíma og nektarmyndir af Harry Bretaprins voru að gera allt vitlaust voru Vilhjálmur Bretaprins og Kate Middleton í fríi. Óprúttnir ljósmyndarar tóku myndir af Kate, án hennar vitneskju, þar sem hún var ber að ofan í sólbaði. Hertogahjónin kærðu franska fjölmiðilinn Closer sem birti myndirnar og unnu málið. Closer var gert að borga hjónunum fimmtán milljónir króna.

Harry var í hernum þegar nektarmyndirnar voru teknar. Mynd/Getty

2012 – Nakinn í partíi

Harry Bretaprins virðist koma oft við sögu þegar litið eru yfir hneyksli síðustu áratuga. Árið 2012 náðust myndir af honum nöktum í partíi. Hann var þá 27 ára í fríi í Bandaríkjunum og birti The Sun myndirnar á forsíðu.

Harry hafði fækkað fötum í einhvers konar strippútgáfu af billjarðsleik. Samkvæmt heimildarmanni The Sun hafi öryggisteymi Harry verið meðvitað um að fólk væri að taka myndir. „Enginn bað okkur um að afhenda síma eða sagði eitthvað við okkur þegar við mættum. Það var augljóst að fólk var að taka myndir,“ sagði heimildarmaðurinn.

Harry baðst afsökunar á atvikinu. „Þegar allt kemur til alls þá hef ég líklega brugðist sjálfum mér. Ég hef brugðist fjölskyldu minni og ég hef brugðist öðrum. Þetta var líklega klassískt dæmi þess að ég hagi mér aðeins of mikið sem hermaður, en ekki nægilega mikið eins og prins,“ sagði Harry í kjölfarið.

Á þessum tíma gegndi hann herskyldu og náðist téð mynd af honum skömmu áður en hann hélt með herdeild sinni til Afganistan.

Megan gekk ein upp að altarinu. Mynd/Getty

2018 – Ein upp að altarinu

Meghan Markle gekk ein upp að altarinu í maí 2018. Faðir hennar, Thomas Markle, mætti ekki og töldu margir heilsuleysi hans vera ástæðuna. En það kom í ljós að samband þeirra feðgina væri afar stirt og talaði Thomas gegn dóttur sinni í nokkur skipti í viðtölum við bresk dagblöð. Það vakti gríðarlega athygli þegar paparazzimyndir af Thomasi undirbúa sig undir brúðkaupið reyndust vera falsaðar. Hann hafði sjálfur hringt í ljósmyndarana og sett myndirnar á svið.

Ein af paparazzi myndunum sem gerðu allt vitlaust.

2019 – Persónulegt bréf

Thomas Markle opinberaði persónulegt bréf sem Meghan sendi honum eftir brúðkaupið. Hann sendi það til bresku pressunnar sem birti hluta úr bréfinu. Meghan stendur nú í málaferlum við Associated Newspapers, eiganda miðlanna Mail on Sunday og MailOnline vegna bréfsins og segist Thomas vera tilbúinn að bera vitni gegn dóttur sinni.

Skjáskot úr viðtalinu alræmda.

2019 – Andrew segir af sér

Andrew Bretaprins dró sig í hlé frá konunglegum skyldum sínum í nóvember 2019. Hann sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann kvaðst hafa fengið leyfi frá Elísabetu Bretlandsdrottningu til að draga sig í hlé frá öllum konunglegum skyldustörfum til frambúðar.

Ástæðan fyrir því var aukin gagnrýni á vináttu hans við auðkýfinginn og barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Nokkrum dögum áður en Andrew sagði af sér kom hann fram í viðtali þar sem hann tjáði sig um kynni sín af Jeffrey og ásakanir á hendur honum um að hann hafi haft mök við ungar stúlkur sem Jeffrey Epstein gerði út í vændi.

Það er óhætt að segja að viðtalið hafi valdið talsverðu fjaðrafoki og kom Andrew einstaklega illa út úr því. Sumir líktu viðtalinu við kjarnorkusprengingu.

Megan og Harry sögðu skilið við konungsfjölskylduna í fyrra. Mynd/AP

2020 – Megxit

Það má auðvitað ekki gleyma Megxit sem tröllreið fjölmiðlum allt síðasta ár. Brottför Harrys og Meghan úr konungsfjölskyldunni fékk nafnið Megxit í breskum fjölmiðlum, frekar lýsandi fyrir hegðun og viðhorf bresku pressunnar til Meghan. Harry og Meghan sögðust vilja eiga meira einkalíf og þess vegna hefðu þau tekið þessa ákvörðun. En hvort það hefur gengið eftir er erfitt að meta. Þau voru stöðugt á milli tannanna á fólki allt árið og vildi stór hluti Breta að hjónin yrðu svipt titlunum hertogi og hertogaynja af Sussex.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fókus
Í gær

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“
Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 3 dögum

Grunaði að eiginkonan væri að halda framhjá – „Sannleikurinn var tvöfalt verri“

Grunaði að eiginkonan væri að halda framhjá – „Sannleikurinn var tvöfalt verri“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“