fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Öðruvísi og óvenjuleg stefnumót

Auður Ösp
Fimmtudaginn 16. júlí 2020 20:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrstu stefnumót og „deitkvöld“ þurfa ekki að einskorðast við það að fara út að borða og í bíó. Þeir sem eru eða hafa verið á deitmarkaðnum, vita hversu stressandi það getur verið að fara á fyrsta stefnumót. Hvert á að fara? Hvað á að gera? Í hverju á ég að fara? Hvað eigum við tala um?

Þegar fólk hefur svo loks náð saman eftir svitastorkna og tilfinningaþrungna byrjun, þá fyrst byrjar ballið. Hvernig heldur maður neistanum og ævintýrinu gangandi? Hér koma nokkrar uppástungur fyrir þá sem eru til í að prófa eitthvað nýtt og spennandi.

Frisbígolf

Vinsældir frisbígolfs hafa líklega aldrei verið meiri en nú og frisbígolfvöllur er tilvalinn hlutlaus, fjölfarinn staður fyrir fyrsta stefnumót. Frisbígolfið er leikið á svipaðan hátt og venjulegt golf, en í stað golfkylfa og golfbolta nota leikmenn frisbídiska þar sem markmiðið er að klára hverja braut á sem fæstum köstum. Á vellinum er að finna teiga, brautir og flatir, þar sem markmiðið er að koma diskunum í þar til gerðar körfur sem gegna hlutverki hola. Frisbígolfvelli er að finna víða á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.

Mynd/Aðsend

Kokteilanámskeið

Það er tilvalið að nýta stefnumótið í að læra eitthvað nýtt, og enn betra að geta svo notið afrakstursins strax á eftir. Kokteilaskóli Rvk Cocktails heldur reglulega námskeið sem eru tilvalin fyrir pör og vinahópa, en þátttakendur læra helstu grunnatriðin í kokteilagerð og læra síðan að blanda þrjá ólíka kokteila, sem eru hver öðrum betri. Námskeiðin eru haldin í kjallaranum á veitingahúsinu Snaps, alla miðvikudaga kl. 18 og standa yfir í rúmlega tvær klukkustundir.

Mynd/Valli

Fjallganga

Fyrir útivistargarpana og heilsuræktarfólkið er létt fjallganga á til dæmis Esjuna, Úlfarsfell eða Helgafell tilvalin. Það að vinna að sameiginlegu verkefni er kjörin leið til að kynnast hinum aðilanum betur. Ef stemningin er góð má síðan enda kvöldið með því að fara út að borða, skreppa í ísbíltúr eða jafnvel rómantíska lautarferð. Sé stemningin vond er allavega hægt að vinna að líkamlegri hreysti og bara skokka á undan.

Mynd/Sigtryggur Ari

Flyover Iceland

Upplifunarsýningin Flyover Iceland hefur slegið rækilega í gegn og því er óhætt að mæla með henni fyrir þá sem vilja upplifa eitthvað nýtt og ógleymanlegt sem virkjar öll skilningarvitin. Gestir fara í sýndarflugferð yfir stórbrotna náttúru Íslands og sérsmíðuð sæti lyftast og hreyfast með myndinni, sem gefur áhorfandanum þá tilfinningu að hann svífi eins og fugl yfir landið. Tilvalið er að kíkja í mat eftir ferðina, en fjöldi góðra veitingastaða er úti á Granda.

Mynd/FlyoverIceland

Salsadans

Þetta er fyrir þá sem virkilega vilja stíga út fyrir þægindarammann. Salsa er kynþokkafullt og seiðandi og hreyfingarnar kalla á nána snertingu og augnsamband. Ef báðir aðilar eru taktlausir þá geta þeir að minnsta kosti alltaf hlegið saman að klunnaskap hvors annars. Salsa Iceland stendur fyrir salsadanskvöldum með ókeypis prufutíma fyrir byrjendur, alla miðvikudaga allan ársins hring, auk bachata eða kizombakvölda nokkrum sinnum í mánuði.

Mynd/Ernir

Rafhjólatúr

Það hefur varla farið fram hjá neinum að rafhlaupahjól, eða rafskútur, eru mál málanna í dag og vart hægt að fara út úr húsi án þess að sjá fólk á skútum þeysast um göturnar. Hvernig væri að fara saman í rómantískan hjólatúr, til dæmis á Ægissíðu, í Laugardal eða út á Granda? Fyrir þá sem eru staddir á höfuðborgarsvæðinu býður Rafskútuleigan Hopp upp á leigu á rafhjólum til skamms tíma með Hopp appinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt