Margir Íslendingar virðast óttast hinn svokallaða stóra gagnaleka, ef marka má samfélagsmiðla. Gagnalekinn myndi varða upplýsingar sem koma fram á Messenger, sem er spjallforrit tengt Facebook. Messenger hefur verið að glíma við erfiðleika í dag, en forritið hefur legið niðri og átt við aðrar bilanir. Þessu hafa líklega margir tekið eftir, enda er Messenger einn allra vinsælasti samfélagsmiðillinn. Margir óttast að bilanirnar séu tengdar þessum stóra gagnaleka.
Fólk óttast að í stóra gagnalekanum myndu viðkvæm einkaskilaboð verða opinberuð. Óttinn um þennan gagnaleka tengist Vodafone-lekanum svokallaða, sem átti sér stað árið 2013, en þá komust mikið af viðkvæmum upplýsingum á yfirborðið.
Líkt og áður segir eru margir Íslendingar hræddir við lekann, en á samfélagsmiðlinum Twitter hafa margir lýst yfir áhyggjum sínum. Geir Finnsson, varaborgarfulltrúi, er einn þeirra, en hann segist kaldhæðnislega ekki hafa neinar áhyggjur.
Messenger er bara smá bilaður, engin hætta á neinum leka eða neitt, ég er góður, mér LÍÐUR VEL pic.twitter.com/lnSTVH291R
— Geir Finnsson (@geirfinns) December 10, 2020
Snærós Sindradóttir, fjölmiðlakona, segist ekki skilja fólk sem myndi garfa í einkaskilaboðum bara til að finna eitthvað slæmt um sig.
Mér finnst það semi segja meira um manneskjuna, sem myndi nenna að fletta í gegnum messenger hjá mér til að finna skít um sig, en sjálfa mig. Mér dettur eiginlega enginn í hug sem ég myndi nenna að skrolla í gegnum samtalið hjá leitandi að einhverju sem ég vissi ekki hvað væri.
— Snærós Sindradóttir (@Sindradottir) December 10, 2020
Lista- og fjölmiðlamaðurinn Felix Bergsson viðurkennir „ábyrgð“ sína í málinu, með því að hafa skoðað grunsamlegt myndband í morgun.
oh ég vissi að ég átti ekki að opna þetta videó á messenger í morgun.. sorry krakkar.. þeir eru að vinna í þessu
— Felix Bergsson (@FelixBergsson) December 10, 2020
Isabel Alejandra Díaz, forseti stúdentaráðs, segist hafa verið að búast við gagnalekanum.
Ég vissi það, er búin að vera að bíða eftir þessu https://t.co/t1Yh3bMKiq
— Isabel (@islandsbel) December 10, 2020
Magnús Guðmundsson, betur þekktur sem Maggi Peran, gerði skondið grín að málinu.
Vil benda á korter í gagnalekann að typpamyndirnar sem ég hef sent þarna í gegn eru allar gerðar í ölæði. Forhúðaraðgerðin greri vitlaust og það orsakar nabbann. Ef enginn gagnaleki verður…. delete this tíst! pic.twitter.com/xwPxGXdDgD
— Maggi Peran (@maggiperan) December 10, 2020