Hertar aðgerðir voru kynntar á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í Hörpunni klukkan 13:00 í dag. Nú mega aðeins tíu eða færri koma saman, skólum verður gert að taka upp takmarkanir, íþróttaiðkunn óheimil, sviðslistir óheimilar, krár lokaðar og veitingastaðir þurfa loka klukkan 21:00 svo dæmi séu tekin.
Þessar hertu aðgerðir eru líklegar til að bæta töluvert í farsóttarþreytuna sem hefur gripið um sig meðal landans og brugðust margir við hertum aðgerðum á samfélagsmiðlinum Twitter. Bar þar á nokkurri óvissu um afdrif leik- og grunnskólabarna í þessum hertu aðgerðum, en ekki er ljóst hvernig skólastarfi verður hagað næstu vikur miðað við þau skilyrði sem skólar þurfa að uppfylla samkvæmt hertum reglum. Börn fædd 2015 og síðar eru undanskilin takmörkununum.
Ég finn svo til með íslenskum börnum. Mikið er þetta sorglegt.
— Þórunn Jakobs (@torunnjakobs) October 30, 2020
Allur skólinn hjá barninu komin í úrvinnslusóttkví, skal alveg viðurkenna að andlega heilsan hjá mér er ekki upp á 10. Finn alveg hvernig kvíði eykst með hverjum degi. pic.twitter.com/RYe4h8FFRf
— Drífa Pálín Geirs (@DrifaP) October 30, 2020
Lilja hefði mátt vera miklu skýrari! Undanþágur fyrir leik- og grunnskóla skv minnisblaði Þórólfs: pic.twitter.com/8rKxUnKUlN
— Katrín Atladóttir (@katrinat) October 30, 2020
Forsætisráðherra setti tóninn með þeim mikilvæga punkti að börn séu hvött til að safna ekki sælgæti
— Hans Orri (@hanshatign) October 30, 2020
Ég er auðvitað mjög hrifnæm svona almennt, en það var myndin sem teiknaðist upp í huganum, af hversdagsleika þar sem foreldrar setja grímur á börnin sín fyrir skóla, sem náði mér 😭
— Þorbjörg Þorvaldsdóttir (@torbjorg) October 30, 2020
Í hvaða heimi lifum við þegar við ætlumst til þess að 6 ára krakkar haldi 2 metra fjarlægð og beri grímur?
— Jakob Helgi (@jakobhelgi) October 30, 2020
Höskuldarviðvörun:
Sögufléttan í jóladagatali Sjónvarpsins. pic.twitter.com/dPWrz572BH— Ragnar Eyþórsson (@raggiey) October 30, 2020
hertar aðgerðir nóvember 2020 moodboard pic.twitter.com/EpRDNiNiqI
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) October 30, 2020
Já, ég er með spurningu fyrir Ölmu. Hafa heilsufarslegar afleiðingar þess að borða tvær samlokur í grilli og pítusósu daglega í tvo mánuði verið kannaðar?
— Atli Fannar (@atlifannar) October 30, 2020
Enga spoilers um upplýsingafundinn, ætla að horfa á hann á VOD-inu á morgun ☺️
— Haukur Bragason (@HaukurBragason) October 30, 2020
Þríeykið og ríkisstjórnin at the wheel… pic.twitter.com/Tc92STRoFT
— Indriði Áki (@IndridiAki) October 30, 2020
EN PARTÝBÚÐIN VERÐUR HÚN EKKI OPIN ÁFRAM?
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) October 30, 2020
ég fór óvart að hugsa um möguleikann á því að enn verði lokað fyrir heimsóknir til skjólstæðinga minna um jólin og ég er korter í að grenja
— karitas m. b. (@kaerleikurinn) October 30, 2020
Sjaldan séð það svartara en samt dökknar það á hverjum degi.
— gunnare (@gunnare) October 30, 2020
Djöfull er eitthvað frískandi að skipta frá einum ráðherra í annan á þessum fundi og allt konur.
— Atli Már Steinarsson (@RexBannon) October 30, 2020
Óháð erfiðum aðstæðum þá verð ég að segja að við erum með traustvekjandi framlínu á fundinum í dag og mér finnst það sérstaklega ánægjulegt að sjá konurnar okkar í ríkisstjórninni. pic.twitter.com/ejO8MEl9NW
— Ólöf Hugrún (@olofhugrun) October 30, 2020
Jæja, þá þarf maður víst að vera með svona á lærinu næstu tvær vikur. Gaddaól fyrir Þóról. pic.twitter.com/M5v39uY0tr
— gunnare (@gunnare) October 30, 2020
Samkomubann 2: electric boogaloo this time its personal
— Guðrún Andrea (@grullubangsi) October 30, 2020
— 🔥🤠Yeehaw Snáðinn 🤠🔥 (@drekarekari) October 30, 2020
á sl mánuði hef ég oftar heyrt einhvern segja “sjáumst kannski einhverntímann” heldur en “sjáumst”
— Fat_Kyle (@freyjaplaya) October 30, 2020
Æi ég held ég hafi endanlega bugast núna.. Fokkið ykkur með þetta „við þurfum öll að..“ veit bara ekki um neinn sem hefur ekki verið að sinna sínu. Fór að pæla um daginn afhverju mér liði illa og hafði þá ekki farið úr húsi í 3 daga. Hvað „þurfum við öll?“..láta svæfa okkur?
— Henrý (@henrythor) October 30, 2020
Tilfinningin akkurat núna er uþb svona pic.twitter.com/f2N8HxSDvY
— Oddur Gunnarsson! Bauer (@oddurbauer) October 30, 2020
Ég er að tárast smá að heyra Katrínu tala um að ná þessu niður fyrir aðventuna.
— Inga (@irg19) October 30, 2020
Vandinn í hnotskurn pic.twitter.com/dlhmuQm0qa
— Konráð S. Guðjónsson (@konradgudjons) October 30, 2020
"Hvað er að frétta?"
Ekkert. Ég hangi heima og allt er hundleiðinlegt og glatað. En hjá þér?Stahp it. Getum við plís bara sameinast um að leggja blátt bann við þessari spurningu þangað til að þetta helvíti ríður yfir
— Davíð Roach (@DavidRoachG) October 30, 2020