fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Sakamál: Tvær manneskjur myrtar eftir ímyndað rifrildi á Facebook

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 26. september 2020 20:53

Jenelle Potter

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

CIA-fulltrúinn Chris hafði mikil áhrif á fjölskyldu eina í smábæ í Tennessee. Hann taldi dótturina á heimilinu vera í hættu og hvatti foreldra hennar til að ráðast til atlögu við stórhættulegt par sem bjó í bænum og ofsótti dótturina. Allt reyndist tal hans tóm þvæla.

Jenelle Potter átti að sögn erfiða ævi í smábænum Mountain Town í Tennessee. Þar búa um 2.500 manns. Fjölskyldan flutti þangað árið 2005 þegar Jenelle var 23 ára. Eldri systir hennar var flutt að heiman en Jenelle var óvinnufær og stríddi við ýmsan heilsubrest. Sykursýki, skert heyrn og kvíðaröskun voru aðeins hluti af því. Foreldrar Jenelle vernduðu hana stíft og hún var mjög einangruð. Hún hitti fáa en varði miklum tíma á netinu þar sem hún lét gamminn geisa undir öðrum nöfnum, fyrst á spjallrásum og síðan á Facebook, eftir að sá frægi samfélagsmiðill kom til sögunnar. Segja má að Jenelle hafi lifað lífi sínu að miklu leyti á samfélagsmiðlum.

Foreldrar hennar eru Barbara og Marvin Potter. Marvin var fyrrverandi hermaður í sjóhernum og hafði þjónað í Víetnam. Hann hafði einnig, að eigin sögn og Barböru, starfað fyrir CIA, en sanngildi þeirra yfirlýsinga er dregið mjög í efa. Þegar þarna var komið sögu stríddi Marvin við ekki minni heilsubrest en dóttirin Jenelle og var óvinnufær. Barbara hafði starfað fyrir Hewlett Packard en hún helgaði sig núna umönnun veikra ættingja, sem voru ástæðan fyrir því að fjölskyldan hafði flutt til Mountain Town.

Jenelle eignast vini

Það var í kringum 2010 sem einangrun Jenelle í Mountain Town var rofin að nokkru leyti. Þá sá lyfjatæknirinn Tracy Greenwell aumur á henni og gaf sig á tal við hana, dag einn þegar Jenelle var að sækja lyfin sín í apótekið. Eftir þetta varði Jenelle nokkrum tíma með Tracy og vinum hennar, sem og bróður hennar Billy Payne. Jenelle varð bálskotin í Billy sem endurgalt það ekki, heldur tók saman við konu að nafni Billie Hayworth. Árið 2011 eignuðust þau barn saman.

Tracy kynnti Jenelle líka fyrir frænda sínum Jamie Curd og þau áttu í ástarsambandi sem þau héldu leyndu fyrir hinum ströngu og ofverndandi foreldrum Jenelle, en hjónin héldu að Jamie væri bara heimilisvinur enda sótti hann líka í félagsskap þeirra og kom oft á heimilið. Hvað sem leið sambandinu við Jamie var Jenelle áfram mjög hrifin af Billy og var mjög ósátt við samband hans við Billie og að þau hefðu eignast barn saman. Hún sagði að hún hefði átt að fæða honum barn.

Ofsóknir á netinu

En einmitt þegar félagslífið virtist loksins farið að blómstra hjá Jenelle varð hún fyrir miklum og vaxandi ofsóknum á netinu. Andstyggileg nafnlaus skilaboð fóru að birtast á Facebooksíðunni hennar. Móðir hennar Barbara, setti inn skilaboð þar sem hún bað fólk um að skrifa ekki á síðuna hennar. Það hafði engin áhrif.

Jenelle hélt því fram að Billie Hayworth stæði á bak við ofsóknirnar. Jenelle sagði jafnframt að fólkið öfundaði hana af því hvað hún væri falleg og það væri ástæðan fyrir ofsóknunum. Þessar ásakanir Jenelle urðu hins vegar til þess að Billy og Billie afvinuðu hana á Facebook, nokkuð sem henni mislíkaði mjög.

 

Billy Payne og Billie Hayworth voru myrt

Hryllileg morð

Þann 31. janúar árið 2012 kom vinur parsins Billy Payne og Billie Hayworth að þeim látnum. Þau höfðu bæði verið skotin í andlitið, auk þess hafði Billy verið skorinn á háls. Í fangi Billie var sjö mánaða gamalt barn hjónanna, og var á lífi, ósært.

Rannsóknarlögreglumaðurinn sem var yfir rannsókn málsins sagði við fjölmiðla að það þyrfti ótrúlega mannvonsku til að myrða konu með barn í fanginu.

Meðal þeirra sem lögregla ræddi fljótt við í rannsókninni voru Jenelle og fjölskylda hennar, auk kærastans/heimilisvinarins Jamie. Við yfirheyrslur sagði Jamie við lögregluna að hann hefði átt í skilaboðaspjalli við CIAmann sem sagði að setið væri um líf Jenelle.

Eftir sex klukkustunda yfirheyrslur játaði Jamie að hafa myrt parið í félagi við Marvin Potter, föður Jenelle. Jamie féllst á að vinna með lögreglunni og tókst honum að útvega hljóðritun þar sem Marvin gekkst við morðunum.

CIA-maðurinn Chris

Meðal þess sem fannst við húsleit hjá Potter-fjölskyldunni voru fjölmargar ljósmyndir af parinu Billy og Billie og mikið magn af útprenti sem innihélt tölvupóstsamskipti við mann að nafni Chris, fulltrúa hjá CIA. Chris átti mest tölvupóstsamskipti við Barböru, móður Jenelle. Chris sagði henni að setið væri um líf Jenelle og fólkið sem ætlaði að vinna henni mein væru þau Billy og Billie. Í augum Chris væru þau bæði réttdræp.

Þetta var vægast sagt sérkennilegt. Hvers vegna í ósköpunum var CIA-maður að skipta sér af fábrotnu fólki í smábæ í Tennessee? Þar að auki var textinn sem maðurinn skrifaði barnalegur og fullur af stafsetningarvillum. Enn fremur komust rannsóknarmenn að því að IP-tala þessa Chris tilheyrði í raun tölvu á heimilinu. Það var Jenelle sem hafði skrifað alla þessa tölvupósta. Fyrirmyndin að þessum Chris var Chris Hayden, gamall bekkjarbróðir Jenelle sem vann við öryggisvörslu. Hann vissi ekkert um þetta.

Enn fremur kom í ljós að allar ofsóknir gegn Jenelle á Facebook voru tilbúningur hennar. Hún hafði stofnað gerviaðganga og skrifað þetta allt sjálf.

Jenelle var einföld stúlka sem hafði lifað vernduðu lífi og hvorki sótt sér framhaldsmenntun né starfsreynslu. Auk þess glímdi hún við geðræn vandamál. Þetta kom ekki í veg fyrir að henni tækist að sannfæra hina ofverndandi foreldra sína um að líf sitt væri í hættu og fá þá til að myrða saklaust fólk. Þessu dæmalausa máli.

Þessu dæmalausa máli lauk með þungum fangelsisdómum. Marvin, faðir Jenelle, fékk tvöfalt lífstíðarfangelsi. Jamie Curd gerði samkomulag við saksóknara og vann með lögreglunni, en hann fékk 25 ára fangelsi. Mæðgurnar Jenelle og Barbara fengu báðar lífstíðarfangelsi.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“