fbpx
Sunnudagur 21.desember 2025
Fókus

Stórkaupmaður selur höllina í Laugardalnum: „Versalir blikna í samanburði” – Sjáðu myndirnar

Fókus
Fimmtudaginn 20. febrúar 2020 15:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Kristján Jónsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, vekur athygli á sölu fasteignar á vef Morgunblaðsins en óhætt er að segja að einbýlishúsið sé allt hið glæsilegasta. Húsið er í eigu Jóhanns J. Ólafssonar, sem er sjaldan kallaður annað en stórkaupmaður.

Guðmundur deilir líkt og fyrr segir mynd af húsinu og skrifar: „Margt sem þarf að ræða hér“. Því svarar Gunnar Dofri Ólafsson, fyrrverandi starfsmaður Viðskiptaráðs Íslands: „Þarna búa eingöngu góðmenni. Mér er málið að vísu dálítið skylt. Veit ekki hversu oft ég hef komið þarna en í hvert skipti finnast mér Versalir blikna í samanburð.“ Fleiri skrifa athugasemdir svo sem Pétur Vilhjálmsson en hann segir: „Eldhústækin eru svo out of character að ég neita að trúa að allar myndirnar séu úr sömu íbúð.“

Húsið er til sölu á litlar 149 milljónir og er um 400 fermetrar að stærð. Myndir af því má sjá hér fyrir neðan. Eigandinn er fyrrnefndur Jóhann en hann var meðal annars um tíma formaður Viðskiptaráðs. Hann komst til efna þegar hann tók við við fyrirtækinu Jóhann Ólafsson & Co. af föður sínum. Hann hefur nýverið skrifað greinar þar sem hann boðar harða frjálshyggju og andstöðu við skattlagningu ríkisins. Það var gagnrýnt í pistli á Miðjunni í vikunni.

Sjáðu myndir af húsinu hér að neðan

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Svar Leonardo DiCaprio kemur aðdáendum á óvart

Svar Leonardo DiCaprio kemur aðdáendum á óvart
Fókus
Fyrir 2 dögum

John Lewis í klandri vegna jólaauglýsingar – Hörð gagnrýni á jólagjöf eiginmannsins til eiginkonunnar

John Lewis í klandri vegna jólaauglýsingar – Hörð gagnrýni á jólagjöf eiginmannsins til eiginkonunnar
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Ég er oft spurður að því hvernig ég fari að því að láta hestana elta mig“

„Ég er oft spurður að því hvernig ég fari að því að láta hestana elta mig“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þess vegna ætlar hjartaknúsarinn aldrei aftur að kyssa mótleikkonur sínar

Þess vegna ætlar hjartaknúsarinn aldrei aftur að kyssa mótleikkonur sínar
Fókus
Fyrir 6 dögum

Svona eiga Jón og Hafdís saman – „Ástin er brennandi“

Svona eiga Jón og Hafdís saman – „Ástin er brennandi“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Íslensk leikkona á sér tvífara í öðru landi

Íslensk leikkona á sér tvífara í öðru landi