fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fókus

Eldri konur með yngri mökum

Fókus
Föstudaginn 5. október 2018 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um síðustu helgi vakti frétt um nýjan kærasta tónlistarkonununnar Svölu Björgvins mikla athygli. Sá lukkulegi heitir Guðmundur Gauti Sigurðarson, alltaf kallaður Gauti. Ástæðan fyrir áhuga lesenda var ekki síst sú staðreynd að 18 ára aldursmunur er á parinu.  DV tók því saman fleiri dæmi um glæsilegar valkyrjur sem hafa valið sér  yngri maka.

Guðmundur Gauti Sigurðarson og Svala Björgvins.

 

Svava Johansen og Björn K. Sveinbjörnsson

Eitt glæsilegasta par landsins er hjónin Svava Johansen, gjarnan kennd við Sautján, og Björn K. Sveinbjörnsson. Saman reka þau NTC og tengdar verslanir. Þau hafa verið saman síðan 2005 en Svava er fjórum árum eldri en Björn.

Svava Johansen og Björn K. Sveinbjörnsson.

 

Ágústa Johnson og Guðlaugur Þór

Það vakti mikla athygli árið 1999 þegar líkamsræktarfrömuðurinn Ágústa Johnson og borgarfulltrúinn Guðlaugur Þór Þórðarson fóru að stinga saman nefjum. Það er einkenni góðs sambands að báðir aðilar blómstri og það gildir svo sannarlega um þau hjónin. Guðlaugur Þór er utanríkisráðherra þjóðarinnar og heilsutengd viðskipti Ágústu mala gull.

Guðlaugur Þór Þórðarson og Ágústa Johnson.

 

Guðrún Gunnarsdóttir og Hannes Friðbjarnarson

Það er eitthvað með tónlistarfólk og þessi töfrandi tólf ár. Það er einmitt aldursmunurinn á söng- og fjölmiðlakonunni Guðrúnu Gunnarsdóttur og Hannesi Friðbjarnarsyni tónlistarmanni. Þau skötuhjúin hafa verið saman um árabil og geisla af hamingju.

Hannes Friðbjarnarson og Guðrún Gunnarsdóttir.

María Björk Sverrisdóttir og Örn Sævar Hilmarsson

Tólf ára aldursmunur er á tónlistarkonunni Maríu Björk Sverrisdóttur og manni hennar, athafnamanninum Erni Sævari Hilmarssyni. María Björk er þekktustu fyrir samnefndan söngskóla sinn, sem hún hefur rekið í aldarfjórðung, og útgáfu hins geysivinsæla barnaefnis Söngvaborgar, í samstarfi við Siggu Beinteins. Þá var hún umboðsmaður söngkonunnar Jóhönnu Bjargar auk þess sem hún hefur gert það gott með framlagi sínu í Eurovision-keppninni.

Örn Sævar Hilmarsson og María Björk Sverrisdóttir.

Sigríður Beinteinsdóttir og Birna María Björnsdóttir

Tólf ára aldursmunur er á tónlistarkonunni góðkunnu og sambýliskonu hennar, Birnu Maríu. Parið eignaðist tvíbura, son og dóttur, fyrir tæpum átta árum og hefur Sigríður látið hafa eftir sér að eðlilegra væri að hún væri amma barna sinna en móðir.

Sigríður Beinteinsdóttir og Birna María Björnsdóttir.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Bianca Censori í nærfötum úr nammi á götum New York

Bianca Censori í nærfötum úr nammi á götum New York
Fókus
Í gær

Leikkonan kemur sambandinu til varnar – Nýja kærastan 18 árum yngri

Leikkonan kemur sambandinu til varnar – Nýja kærastan 18 árum yngri
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ef þú þorir er lag um það að taka fyrsta skrefið

Ef þú þorir er lag um það að taka fyrsta skrefið
Fókus
Fyrir 6 dögum

Bergur Þór: „Mér leið eins og þetta væri eina leiðin út“

Bergur Þór: „Mér leið eins og þetta væri eina leiðin út“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Birgitta samdi lag um ungan mann sem varð úti á Laugavegi – 11 árum seinna hitti hún bróður hans – „Veistu það, ég fékk svo mikla gæsahúð“

Birgitta samdi lag um ungan mann sem varð úti á Laugavegi – 11 árum seinna hitti hún bróður hans – „Veistu það, ég fékk svo mikla gæsahúð“