fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkur áfram óstjórntækur – enn vandræðagangur – aðrir flokkar með öfluga lista

Eyjan
Föstudaginn 13. mars 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vandræðagangur Sjálfstæðisflokksins í borgarmálum virðist engan enda ætla að taka. Flokkurinn hefur verið í minnihluta frá árinu 2010 og að mestu leyti frá árinu 1994 þegar R-listinn steypti hreiðrinu undan flokknum í Reykjavík. Hugmyndir voru nú uppi um að gera atlögu að bættum hag flokksins í borginni með því að slíðra sverð og reyna að stilla upp samstilltum lista sem gæti höfðað til kjósenda. Flokkurinn forðaðist prófkjör og uppstillingarnefnd reyndust vera mislagðar hendur við val á listann. Mikil orka fór í að koma sitjandi borgarfulltrúum og varaborgarfulltrúum út af listanum með þeim afleiðingum að þrír þeirra hafa nú gengið í Miðflokkinn og kvatt Sjálfstæðisflokkinn í illu. Flokkurinn hefur verið óstjórntækur um árabil vegna innri ágreinings. Á því kjörtímabili sem nú er að ljúka er talið að hann hafi verið þríklofinn. Klofningsfólkinu hefur annað hvort verið ýtt út af listanum eða ýtt langt niður. Fráleitt er að halda því fram að vinsemd og friður ríki varðandi þær breytingar sem gerðar hafa verið.

Orðið á götunni er að uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins hafi ekki náð miklum árangri við mótun nýja listans. Margir telja að fyrst og fremst hefði átt að skipta um oddvita en flokkurinn tapaði tveimur borgarfulltrúum í síðustu kosningum þegar Hildur Björnsdóttir leiddi listann í fyrra skiptið. Henni hefur ekki tekist að koma flokknum til valda né að halda hópi borgarfulltrúa saman. Val á fulltrúum í efstu sætin núna er umdeilt. Einkum þykir veikt að taka 66 ára gamlan fallinn þingmann, Brynjar Níelsson, inn á listann í þriðja sæti – „gamalt vín á nýjum belgjum,“ en í því felst ekkert nýjabrum. Einnig er umdeilt að velja Rúnar Frey Gíslason í fimmta sætið en hann er umdeildur og umtalaður. Bjarni Guðjónsson af Akranesi er vel þekktur í knattspyrnuhreyfingunni en trúlega ekki mikið fyrir utan hana. Flest þykir benda til þess að flokkurinn verði áfram óstjórntækur í minnihluta og þar með valdalaus í borginni sem vitanlega er óþolandi fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem átti sér lengst af glæsilegan feril í borgarmálum.

Síðan eru liðin mörg ár.

Á meðan Sjálfstæðisflokkurinn engist hafa aðrir flokkar stillt upp öflugum framboðslistum í borginni. Samfylkingin hefur kynnt nýjan leiðtoga, Pétur Marteinsson, sem þykir koma vel fyrir og veras líklegur til að heilla kjósendur. Að auki eru fjórir nýir frambjóðendur í sjö efstu sætum flokksins sem allir þykja frambærilegir. Viðreisn kynnti glæsilegan framboðslista sinn í síðustu viku. Björg Magnúsdóttir leiðir listann en miklar vonir eru bundnar við hana. Róbert Róbertsson, fyrrum bæjarstjóri, er í öðru sæti en stóra bomban í því framboði er Þorvaldur Davíð Kristjánsson, leikari og hagfræðingur frá Oxford. Hann er þjóðþekktur úr ýmsum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Miðflokkurinn er líklegur til afreka vegna vinsælda á landsvísu. Flokkurinn hefur engan borgarfulltrúa núna. Þá má ekki gleyma Vinstrinu undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur sem notið hefur vinsælda og virðingar borgarbúa.

Orðið á götunni er að úrslit kosninga til sveitarstjórna ráðist einkum af því fólki sem býður sig fram og mest mæðir á, málefnum og ekki síst stöðu einstakra flokka á landsvísu. Í því ljósi er óhætt að fullyrða að Samfylkingin eigi mikið inni þegar kemur að borgarstjórnarkosningum en á sama tíma getur Sjálfstæðisflokkurinn ekki vænst mikils. Miðflokkurinn er með mikið fylgi á landsvísu en byrjar í borginni frá núlli, með engan borgarfulltrúa.

Í ljósi alls sem að framan getur er þessu spáð um úrslit borgarstjórnarkosninga þann 16 maí á komandi vori:

Samfylking 7 borgarfulltrúar.
Sjálfstæðisflokkur 5 borgarfulltrúar.
Viðreisn 4 borgarfulltrúar.
Miðflokkur 3 borgarfulltrúar.
Vinstrið 2 borgarfulltrúar.
Flokkur fólksins 1 borgarfulltrúi.
Píratar 1 borgarfulltrúi.

Orðið á götunni er að þessi niðurstaða teldist mikil tíðindi – og þó!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Allt sem þú þarft að vita um ESB-þjóðaratkvæðagreiðsluna

Allt sem þú þarft að vita um ESB-þjóðaratkvæðagreiðsluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Katrín Káradóttir skrifar: Soroptimistar taka þátt í alþjóðlegum baráttudegi kvenna því það skiptir máli

Katrín Káradóttir skrifar: Soroptimistar taka þátt í alþjóðlegum baráttudegi kvenna því það skiptir máli
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Hunda- og kattahald í fjöleignarhúsum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Hunda- og kattahald í fjöleignarhúsum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Bæling er ekki boðskapur kærleikans

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Bæling er ekki boðskapur kærleikans