fbpx
Laugardagur 11.apríl 2026
Eyjan

Skiptar skoðanir á ESB-Silfrinu í gær – „Þessi þáttur af Silfrinu er eins og eitthvað skynfæraofbeldi“

Eyjan
Þriðjudaginn 10. mars 2026 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Silfrið á RÚV var líflegt í gærkvöldi þar sem fulltrúar flokkanna sem eiga sæti á Alþingi rökræddu fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu.

Rithöfundurinn Illugi Jökulsson beið spenntur: „Ég bíð spenntur eins og barn og iðandi af tilhlökkun eftir umræðum stjórnmálaflokkanna um Evrópusambandið í Silfrinu.“

En hvað höfðu landsmenn að segja að útsendingu lokinni?

Skynfæraofbeldi

Samfélagsrýnirinn Hrafn Jónsson gekk svo langt að kalla þáttinn einhvers konar skynfæraofbeldi.

„Þessi þáttur af Silfrinu er eins og eitthvað skynfæraofbeldi. Við getum ekki setið undir þessu samtali næstu mánuði.

Það er samt mjög fyndið að um leið er gengið á Sigmund með eitthvað, sérstaklega þegar minnst var á fundi hans með hugmyndasmiðum repúblíkanaflokksins þá hrekkur aumingja kallinn beint í Wintris gírinn. Tafsar bara eitthvað flóttalegur til augnanna. Held hann þurfi kannski aðeins fleiri og betri námskeið þarna hjá Koch bræðrum.“

Vísaði Hrafn þar væntanlega til Orðsins á götunni og/eða frétta sem birtust í nýjasta tölublaði Heimildarinnar um tengsl Miðflokksins við bandarískar hægrihreyfingar. Rithöfundurinn Margrét Tryggvadóttir skrifar í athugasemd hjá Hrafni að viðbrögð Sigmundar hafi verið nokkuð mögnuð þar sem hann hafi viðurkennt að hafa ekki lesið frétt Heimildarinnar.

„Og ansi magnað, miðað við hvað hann sagði að mikil vinna færi í að leiðrétta þetta, að hann hafði ekki lagt á sig að lesa greinina heldur fengið munnlega útskýringu frá aðstoðarfólki.“

Fleiri töldu Sigmund hafa sýnt kunnuglega takta. Eiríkur Jónsson, fyrrum formaður Kennarasambands Íslands, skrifar í færslu: „Þegar Sigmundur Davíð var spurður um meint tengsl Miðflokksins við Trumpista í USA minntu viðbrögðin, svipbrigðin og svörin óþægilega á viðbrögð hans og við spurningunni forðum:„Mr. Prime minister. What can you tell me about a company called Wintris?““

Grínistinn Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir sagði að það hefði verið gaman að horfa á Silfrið og „hlusta á þetta forríka fólk tala um hvað ESB aðild er hræðileg, og við missum allan rétt yfir auðlindum okkar og að meirihluti fólks í atvinnugeiranum sé mótfallið þessu.“

Sjálf kannast Elva Dögg ekkert við að hafa rétt yfir þessum auðlindum og eins segist hún hvorki vera ríki né atvinnurekandi.

„Plís ekki láta vælið í auðvaldinu stjórna því hvar „okkur“ er best borgið. Hafðu þína eigin hagsmuni í fyrirrúmi…“

Hver er ríkið?

Anton Sveinn McKee, formaður ungra Miðflokksmanna, taldi að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefði afhjúpað „yfirlætið“ í Valkyrkjustjórninni með frammistöðu sinni í gær.

Fleiri hægrimenn hafa skotið á þessa tilvitnun Þorgerðar Katrínar í Lúðvík XIV (f. l’état, c’est moi), en rétt er að geta þess að af samhengi þáttarins má ráða að Þorgerður var að nota tilvitnunina til að skjóta á Sigmund og orð hans um að enginn hafi staðið betur vörð um íslenska hagsmuni, enda sagði hún orðrétt við Sigmund, „Ég er ríkið og ríkið það er ég, ertu þar?“ og Sigmundur svaraði: Nei.

Sigmundur notaði tilvitnunina til sólkonungsins Lúðvíks í ritdeilum sínum við þáverandi borgarstjóra, Dag B. Eggertsson, árið 2016: „Lúðvík XIV á að hafa sagt ,,ríkið það er ég“. Nú segir borgarstjórinn í Reykjavík hins vegar ,,ríkið, það er Sigmundur Davíð, og allar stofnanir og nefndir með“.

Guðmundur Franklín Jónsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi, var einn þeirra sem misskildi tilvitnunina, og var ekki einn um það.
„„Ég er ríkið“ (L’État, c’est moi) heldur utanríkisráðherrann að hún sé orðin Sólkonungurinn! Afskaplega óheppilegt orðalag, það þarf einhver að grípa í taumana.“

 

Einar Jóhannes Guðnason oddviti Miðflokksins í Kópavogi var lukkulegur með formanninn sinn sem og Lilju Alfreðsdóttur. Þau hafi átt stórleik.

Axel Jón Ellenarson, samskiptastjóri Sameykis, ákvað að gera grínútdrátt á umræðum kvöldins í tveimur laufléttum færslum. Önnur fjallaði um Sigmund Davíð Gunnlaugsson og hin um Lilju Alfreðsdóttur.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir komin á DV

Kolbrún Bergþórsdóttir komin á DV
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael

Sigmundur Ernir skrifar: Slíta ber tengslin við Ísrael
Eyjan
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson: Þörf á betri útskýringum – getur viðræðum ekki lokið öðruvísi en með samningi sem lagður yrði fyrir þjóðina?

Davíð Þór Björgvinsson: Þörf á betri útskýringum – getur viðræðum ekki lokið öðruvísi en með samningi sem lagður yrði fyrir þjóðina?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Íslendingurinn og auto-exotisminn

Nína Richter skrifar: Íslendingurinn og auto-exotisminn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Bjarni gengur aftur í pólitík og reynir að valda skaða

Orðið á götunni: Bjarni gengur aftur í pólitík og reynir að valda skaða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hermann Björnsson: Einkainnviðaframkvæmdir spennandi fjárfestingarkostur fyrir tryggingafélög

Hermann Björnsson: Einkainnviðaframkvæmdir spennandi fjárfestingarkostur fyrir tryggingafélög
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár: Símnotkun undir stýri jafnstórt mál og öryggisbeltin á sínum tíma

Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár: Símnotkun undir stýri jafnstórt mál og öryggisbeltin á sínum tíma
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Stóra spurningin er hvort við gætum haft það betra

Sigmundur Ernir skrifar: Stóra spurningin er hvort við gætum haft það betra