fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Hvar er best að búa?

Eyjan
Laugardaginn 7. mars 2026 06:00

Mynd/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolskeggur hét bróðir Gunnars Hámundarsonar á Hlíðarenda í Brennu-Njálssögu. Þeir bræður voru dæmdir til útlegðar fyrir ýmiss konar ofbeldisbrot. Gunnar fór hvergi og var drepinn í hópslagsmálum í Fljótshlíðinni. Kolskeggur fór til Noregs og og Danmerkur og þaðan fluttist hann búferlum til Miklagarðs eða Istanbul. Þrátt fyrir fjarlægðina var hugur Kolskeggs alltaf á Íslandi. Hann var duglegur á samfélagsmiðlum og hafði ákveðnar skoðanir á því ófremdarástandi sem hann sagði ríkja í heimalandinu. Vöruverð og vextir voru allt of háir og veðrið og umferðin ömurleg. Hann birti reglulega myndir af innkaupakörfu frá markaðnum í Istanbul og bar saman við verð í íslenskri kjörbúð.

Þessa andúð á föðurlandi sínu á Kolskeggur sameiginlega með fjölmörgum Íslendingum sem búa erlendis. Menn hugsa eins og Grímur Thorkelin leyndarskjalavörður í Kaupmannahöfn á nítjándu öld sem bað góðan Guð að forða sér frá því að flytjast aftur heim til Íslands. Hann sagðist hafa verið þar allt of lengi og kvaðst þakka Guði og kónginum fyrir að hafa komið sér þaðan burt. Íslendingar sem flust hafa búferlum til útlanda fjasa endalaust á netinu um dapurlegt ástand á gamla Fróni.

Sjónvarpsstöðin Sýn tók viðtal við Kolskegg í þáttaröð sinni „Hvar er best að búa?“ Hann dásamaði Istanbul og myndir voru teknar af honum í teppabúð og sælgætisverslun. „Allt er betra í Tyrklandi, matur, verðlag, veðrátta og umferðin. Erdogan er toppmaður.“ Hann minnti einna helst á Ameríkuagent frá nítjándu öld sem hvatti alla að flytjast búferlum frá Íslandi.

Ég hef búið lengi erlendis í nokkrum löndum og fylgst vel með sjónvarpi. Hvergi hef ég fundið sambærilegt sjónvarpsefni þar sem beinlínis er hvatt til fjöldaflótta frá heimalandinu. Í lok þáttarins sat Kolskeggur á rakarastofu og borgaði 20 eurur fyrir klippingu. „Hvað mundi þetta kosta á Íslandi?“ sagði hann reiðilega og setti blæju fyrir andlit konu sinnar. Sýn myndaði hann að lokum í glaðasólskini þvo fætur sína fyrir utan hverfismoskuna. „Aðgengi að moskunum er mun betra en að kirkjum í Reykjavík,“ heyrðist hann tauta fyrir munni sér áður en hann hvarf úr mynd. Í fjarska hljómaði bænakall úr turninum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Sama ljóta blokkin um allt

Björn Jón skrifar: Sama ljóta blokkin um allt
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Skýjaborgir eða raunveruleikinn

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Skýjaborgir eða raunveruleikinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Innganga nýrra ríkja í ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Innganga nýrra ríkja í ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hart er í heimi

Óttar Guðmundsson skrifar: Hart er í heimi
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Málfarspistill

Björn Jón skrifar: Málfarspistill
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Jón Gnarr skrifar: Frelsi

Jón Gnarr skrifar: Frelsi