fbpx
Fimmtudagur 16.apríl 2026
Eyjan

Andri Þór Guðmundsson: Verkefnið að fá samstarfsaðila sem kemur með meira en bara peninga

Eyjan
Fimmtudaginn 12. mars 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Collab drykkur Ölgerðarinnar er í útrás og hittir á einhvern „sweet spot“ á markaðnum og höfðar til fjöldans. Þess vegna er rauði dregillinn nánast settur fram erlendis. Collab nær til viðskiptavina, sem hafa ekki verið ginnkeyptir fyrir drykkjum af þessu tagi hingað til. Ekki skemmir fyrir að fá Laufeyju og systur hennar, Júníu, til samstarfs og þar sem aðdáendur Laufeyjar eru á öllum aldri var í fyrsta sinn komið með koffeinlausan drykk samhliða kynningu á koffein drykknum. Andri Þór Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Ölgerðarinnar, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Andri Þór Guðmundsson - 2
play-sharp-fill

Andri Þór Guðmundsson - 2

„Þetta er náttúrlega bara lífsstíls, svona uppástunga, lífsstílsdrykkur fyrir fólk sem vill fá koffínið sitt en vill líka fá eitthvað added benefit og fær það þá þarna í kollageninu sem er unnið úr sjávarfangi hjá okkur þar sem upptakan í líkamanum er miklu hraðari. Þetta er byggingarefni vöðva, þetta eru amínókeðjur og þetta er eitthvað sem að útlendingar og samstarfsaðilar okkar erlendis finnst gjörsamlega magnað. Við erum að búa til þarna konsept og það má segja að við séum að búa til nýtt segment í markaðnum. Ef við segjum að þetta tilheyri orkudrykkjamarkaði, sem er nú svona „debatable“, þá er þetta svona einhvers staðar í sweet spotti. Við erum ekki þarna í einhverjum extreme gaurum, sem eru að spila tölvuleiki eða í einhverjum extreme sport. Við erum heldur ekki í einhverju rosalegu niche að búa til einhverja fegurðarvöru eða eitthvað með alveg svona einhverri rosalega specific virkni, heldur erum við bara að höfða þarna til fjöldans. Það sem okkur tókst þarna til dæmis með Collab var að við erum að höfða þarna til kvenna sem voru ekki almennt mikið í þessari kategoríu.

Þess vegna fáum við í raun og veru rauða dregilinn þar sem við erum að bjóða vöruna erlendis. Innkaupaaðilarnir bara eru mjög spenntir að prófa þetta, sjá árangurinn sem við höfum náð, sjá demografíuna og aldurinn og annað slíkt. Þetta eru kúnnar sem þeir vilja ná í og, eins og ég segi, þess vegna fáum við þennan rauða dregil, en það er ekki sopið kálið þótt að í ausuna sé komið. Það þarf að vera þar síðan að hreyfast. En þetta er hálfur sigur að komast inn í verslanirnar.“

Þið eruð komnir inn í hvað, Danmörku, Þýskaland og Austurríki?

Já, það eru þessir þrír markaðir sem við erum á og við ætlum að fókusera á þessa þrjá markaði núna í ár og stefnum á að fara á fjórða markaðinn með haustinu. En þetta eru takmarkaðir peningar sem við höfum úr að moða. Þannig að við viljum frekar, heldur en að vera að dreifa, dreifa þessu í allar áttir með haglabyssunni, þá viljum við svona, hvað eigum við að segja, rækta þessa fáu markaði sem við erum á.

Kemur til greina að fara í samstarf við einhvern erlendan aðila til að breikka út markaðssóknina erlendis?

„Þetta verður eitt af mínum aðalverkefnum, að draga að fjárfesti inn í Collab. Collab vörumerkið er í sérstöku félagi, eða verður í sérstöku félagi þar sem við munum fara aktíft á þessu ári að leita erlendra samstarfsaðila. Og verðum þá tilbúin til þess að, ja, það er best að segja sem minnst svo sem með það hvað við erum tilbúin að gera, en alla vega þá viljum við fá til samstarfs með okkur aðila sem kemur með eitthvað meira heldur en fjármagn á borðinu.“

Já, einmitt, þá annaðhvort dreifingargetu eða eitthvað …

„Annaðhvort dreifingargetu eða þá einhverja sérþekkingu á uppbyggingu á vörumerki í drykkjarvöru.“

Akkúrat. Ég tek eftir því að það það er kominn Laufeyjar Collab. Það ætti nú ekki að draga úr kynningu á vörumerkinu.

„Heldur betur ekki. Þetta er náttúrlega alveg ævintýralega mikil árás sem er gerð á stæðurnar í búðunum núna. Þetta rýkur út. Hann er frábær á bragðið en náttúrlega stórkostlegt að vinna með listamanni eins og Laufey og systur hennar, Júníu, sem sköpuðu þennan heim, myndheim, og upplifunarheim með okkur í kringum Collab. Og við eigum eftir að sjá það rúllast út svona smám saman á næstu dögum og vikum.

Þetta er gríðarlega spennandi og svo náttúrlega erum við að prófa þarna í fyrsta skipti að koma með, ja, við höfum unnið með listamönnum áður, við höfum unnið með Bríeti til dæmis og Birni að koma með svona Collaba, en þarna komum við í fyrsta skipti með koffínlausa útgáfu samhliða þessari venjulegu vegna þess að aðdáendahópur Laufeyjar er náttúrlega á víðu aldursbili. Og við viljum svona, hvað á að segja, við viljum ná til þeirra neytenda líka, en án koffíns.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin og Orka náttúrunnar gera sitt – boltinn er hjá SA – sporin hræða

Orðið á götunni: Ríkisstjórnin og Orka náttúrunnar gera sitt – boltinn er hjá SA – sporin hræða
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Þýskan er lykilatriði

Björn Jón skrifar: Þýskan er lykilatriði
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra páskaeggjadramað

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra páskaeggjadramað
Eyjan
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson: Baudenbacher veður villu vegar – Ef ESB og Ísland telja aðildarumsóknina í gildi þá er hún í gildi

Davíð Þór Björgvinsson: Baudenbacher veður villu vegar – Ef ESB og Ísland telja aðildarumsóknina í gildi þá er hún í gildi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Sama ljóta blokkin um allt

Björn Jón skrifar: Sama ljóta blokkin um allt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir komin á DV

Kolbrún Bergþórsdóttir komin á DV
Hide picture