Eyjan

Gauti svarar Ólafi Ragnari: „Ef sami þrýstingur beindist að Íslandi á morgun, hver mætir?“

Mynd
Gauti B. Eggertsson. Samsett mynd/Getty

Gauti B. Eggertsson, prófessor í hagfræði við Brown-háskóla, segir varnarhagsmuni Íslands vega hvað þyngst í sínum huga þegar kemur að því hvort Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Í langri og ítarlegri færslu á Facebook fer Gauti yfir stöðuna í alþjóðamálum með tilliti til fyrri atburða, ásælni Donald Trump Bandaríkjaforseta í yfirráð yfir Grænlandi og hvaða þýðingu það hefur fyrir Ísland. 

Hann segir að þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst næstkomandi snúist ekki um að ganga í Evrópusambandið heldur til að leyfa þjóðinni að sjá hvað sé í boði. 

„Mitt mat er ólíkt mati flestra annarra Íslendinga. Hjá mér vega varnarhagsmunirnir einna þyngst. Trygging þeirra er grundvöllur fullveldis þjóðarinnar,“ segir Gauti. Vísar hann svo í ummæli Billy Long sem var skipaður sendiherra á Íslandi um að Ísland gæti orðið ríki í Bandaríkjunum og þegar Trump ruglaðist á Íslandi og Grænlandi í ræðu í janúar.  

„Ef stórveldi telur sig þurfa að eiga Grænland af hernaðarástæðum, hvers vegna þá ekki Ísland? Munurinn á eyjunum tveimur virðist að minnsta kosti ekki alltaf skýr í huga forsetans.“

Hvers vegna ekki Ísland?

Vitnar Gauti svo í orð Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands, í viðtali við Chess After Dark í maí síðastliðnum þar sem hann lýsti hvernig norðurslóðir væru orðnar eitt mikilvægasta svæði heims, meðal annars í öryggis- og hernaðarmálum, og Ísland hefði öðlast miklu meira vægi en nokkru sinni fyrr. 

„Spurður hvort Ísland væri í ágætu skjóli svaraði hann að landið væri bara í ágætri stöðu. Um varnarsamninginn sagði hann að ekkert hefði gerst af hálfu Trump-stjórnarinnar sem gæfi tilefni til efasemda; hafi einhvern tímann verið ástæða til að efast hafi það verið 2006, þegar Bush-stjórnin tók herinn frá Keflavík. Og um Grænlandsmálið sagði hann að þótt það hefði verið óþægilegt hefði ekkert gerst „konkret eða efnislega“ sem gæfi íslenskum stjórnvöldum tilefni til grundvallarbreytinga á utanríkisstefnu.“

Gauti segir að fyrri hluti röksemdafærslu Ólafs Ragnars sé réttur. „Ísland er hernaðarlega mikilvægt. Svo hefur verið í hartnær heila öld. En ályktunin sem af þessu er dregin snýr sögunni á haus,“ segir Gauti og færir sig aftur til heimstyrjaldarinnar síðari. 

„Ísland hafði lýst yfir ævarandi hlutleysi. Það entist þar til Reykvíkingar vöknuðu að morgni 10. maí 1940 við breskan her í fjörunni. Bretar hernámu landið ekki af óvild í garð Íslendinga. Þeir hernámu það af því að það var hernaðarlega mikilvægt og varnarlaust. Ári síðar tók bandarískur her við samkvæmt herverndarsamningi. Ein röksemdin í Washington var sú að Ísland tilheyrði varnarsvæði vesturhvels jarðar, hugsun sem á rætur í Monroe-kenningunni frá 1823; samkvæmt þeirri hugsun féll Ísland innan áhrifasvæðis Bandaríkjanna. Á þennan skilning Roosevelts rakst ég sjálfur í rannsóknum mínum á hagsögu.“

Gauti segir að lexían sé einföld og hafi ekki breyst síðan þá: „Hernaðarlegt mikilvægi varnarlauss smáríkis þýðir ekki að það ráði örlögum sínum. Það þýðir að aðrir ráða þeim. Spurningin er aðeins hverjir, og á hvaða forsendum.“

Trump hefur ítrekað krafist yfirráða yfir Grænlandi, landsvæði bandalagsríkis í NATO þar sem Bandaríkin hafa notið víðtækra réttinda til að reka herstöðvar allt frá árinu 1951. „Fáeinum dögum áður hafði bandaríski herinn handtekið forseta Venesúela og flutt hann úr landi. Greinendur tala nú opinskátt um endurvakningu Monroe-kenningarinnar,“ segir Gauti. 

„Viðbrögð bandamanna segja sína sögu. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sagði að árás Bandaríkjanna á Grænland þýddi endalok NATO. Utanríkisráðherra Noregs orðaði það svo að sjálf hugmyndin um bandalagið myndi bresta.“

Fullveldisrökin sterkust

Gauti hefur búið í Bandaríkjunum í þrjátíu ár og fylgst náið með stjórnkerfinu þar. „Bandaríkin í dag eru allt önnur en þau sem ég flutti til. Lengi töldu menn Grænlandstalið tóma sýndarmennsku. Vestanhafs eru menn smám saman að vakna upp við þann draum að forsetinn meinar það sem hann segir. Kjörtímabili hans lýkur í ársbyrjun 2029. En á bak við hann stendur breið hreyfing í átt til einangrunarhyggju sem á sér djúpar rætur í bandarísku samfélagi. Hún getur lifað hann og enginn veit hvert hún leiðir,“ segir hann. 

„Það eru mörg rök með og á móti aðild að ESB, en að mínu viti eru fullveldisrökin sterkust: að halda sjálfstæði okkar sem þjóð meðal þjóða. Það er óraunhæft að Ísland stofni her með raunverulegan fælingarmátt, og ég tel varnarhagsmuni landsins hvergi betur tryggða en með aðild.“

Ísland hafi gengið að varnarsamningnum sem vísum. „Samningurinn stóð óhaggaður á pappírnum árið 2006; varnirnar sjálfar, þoturnar og liðið, voru samt teknar burt, einhliða. Það sem gerðist 2006 getur gerst aftur.“

Þegar Trump skrúfaði upp þrýstinginn varðandi Grænland var gripið til fordæmalausra aðgerða. „Danmörk sendi á þriðja hundrað hermanna til Grænlands og lét fylgja skotfæri ef allt færi á versta veg. Frakkland sendi fjallahermenn og boðaði liðsauka á landi, sjó og í lofti. Þýskaland sendi könnunarsveit, og Bretland, Svíþjóð, Noregur, Holland, Finnland og Slóvenía lögðu einnig til lið. Æfingin heitir Arctic Endurance og stendur út árið 2026. Innan danska stjórnkerfisins er talað hreint út: þetta er „tripwire“, táknrænn herafli sem tryggir að innrás yrði ekki gerð nema í beinum árekstri við Evrópu alla.“

Hver mætir ef þrýstingurinn beinist að Íslandi?

Gauti spyr hvers vegna Evrópuþjóðir hafi mætt til að verja Grænland. 

„Ekki af því að Grænland sé í Evrópusambandinu; það gekk úr forvera þess 1985. Evrópa mætti af því að Grænland er hluti af danska ríkinu og Danmörk er í hjarta bæði NATO og ESB. Samstaðan rann í gegnum Kaupmannahöfn. Og hún var engin tilviljun. Danmörk situr daglega við borðið þar sem Evrópuríkin móta sameiginlega hagsmuni sína, og þegar á reyndi töldu hin ríkin sig eiga hlut í máli. Utanríkisráðherra Frakklands orðaði það skýrt: Grænland hefur „chosen Denmark, chosen NATO and chosen the European Union“.“

Gauti segir að þá vakni spurningin: „Ef sami þrýstingur beindist að Íslandi á morgun, hver mætir?,“ spyr hann.

„Utan sambandsins eigum við ekkert tilkall til samstöðu Evrópu, aðeins von um velvild. Við getum líka vonað að Bandaríkin taki varnarsamninginn við Ísland af meiri alvöru en samninginn sem þau gerðu við Danmörku um varnir Grænlands. Sá samningur var undirritaður í Kaupmannahöfn 27. apríl 1951, átta dögum á undan varnarsamningnum við Ísland.“

Það sem hafi gerst í janúar hafi sýnt hvernig samstaða virki í reynd, hún byggir á þéttleika tengsla. 

„Danmörk er ofin inn í hvert lagið af öðru: NATO, ESB og norræna samvinnu. Ísland á tvö þeirra en vantar ESB-lagið. Öryggi smáríkis felst ekki bara í herafla annarra heldur í því hverjir telja sig eiga hagsmuna að gæta af því að verja það. Grænland komst að því að slíkir bandamenn eru til. Ísland á ekki að kasta teningunum um framtíðina og vona það besta.“