
Alþingi kemur saman í vikunni, fyrr en upphaflega hafði verið áætlað. Hálfgildingsmálþóf stjórnarandstöðunnar og aðrir tafaleikir urðu til þess að ekki tókst að samþykkja á Alþingi eins mörg mál og stefnt hafði verið að fyrir jól. Við því bregst forseti með því að kalla þingmenn fyrr til vinnu úr jólafríi en ella og er það vel
Orðið á götunni er að þingmenn séu nokkuð vel haldnir þegar horft er til launa- og annarra starfskjara. Föst laun þeirra eru ríflega 1,6 milljónir á mánuði. Ofan á það bætist ýmislegt, m.a. álag fyrir formennsku og varaformennsku í nefndum. Allir nefndarmenn forsætisnefndar fá álag. Auk þess fá þingmenn skattfrjálsar greiðslur sem ekki standa venjulegu launafólki til boða. Lætur nærri að flestir þingmenn séu með eitthvað um tvær milljónir á mánuði, þegar allt er talið. Er þá ekki verið að tína til ýmsan endurgreiddan kostnað á borð við eldsneyti og bílaleigubíla.
Orðið á götunni er að fyrir þessi laun séu þingmenn ekki of góðir til að sinna starfi sínu af samviskusemi og mæta í vinnuna. Allur gangur er þó á því og svo virðist sem stjórnarandstaðan eigi sérstaklega erfitt með að mæta á vinnuna. Almenningur tekur eftir því að gjarnan er fámennt í þingsal þegar þingfundir standa yfir. Það er einna helst að stjórnarandstaðan mæti í þingsal til að tefja mál og vera með almenn leiðindi. Vert er að taka fram að þetta er ekki algilt. Í hópi stjórnarandstæðinga er vissulega fólk sem tekur starf sitt alvarlega og umgengst lýðræðið af virðingu þótt hinir séu því miður fleiri.
Já, gjarnan er fámennt í þingsal og þegar spurt er hverju sæti er viðkvæðið gjarnan að meginþungi þingmennskunnar felist í nefndarstörfum. Því sé lítt að marka það þótt stólar í þingsal séu mannlausir á hverjum þingfundi. Þingmenn séu einfaldlega svo uppteknir við nefndarstörf og lestur þingskjala.
Orðið á götunni er að áhugavert sé að skoða, í ljósi ofangreinds, mætingu þingmanna á nefndarfundi. Þegar rennt er yfir mætingu þingmanna á nefndarfundi kemur í ljós að því fer fjarri að allir þingmenn sinni þeim hluta starfsins af alúð og eljusemi.
Í allsherjarnefnd eru þingmenn að jafnaði með á bilinu 65-95% mætingu. Einn þingmaður nær þó ekki nema 50% mætingu, en það er Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknar.
Í atvinnuveganefnd er mætingarhlutfallið 70-95% nema hvað Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, er með 55% mætingu. Þess má geta hér að 50-55% mæting hjá nemendum í skóla, hvort heldur sem er grunn- eða framhaldsskóla, þýðir einfaldlega falleinkunn.
En ekki batnar það. Í efnahags- og viðskiptanefnd er mæting almennt með nokkrum ágætum, á bilinu 72-89%. Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, virðist hins vegar eiga í stökustu vandræðum með mætingu á nefndarfundi inn í sína dagskrá vegna þess að hún er með 38,89% mætingu fyrir jól. Hefur greinilega engan tíma til að sinna þingmennsku þrátt fyrir að vera, eftir því sem best er vitað, á fullu kaupi sem þingmaður og gott betur. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Alþingis fær Hildur kr. 1.852.981 í laun á mánuði, auk kr. 101.500 í fastan starfskostnað og ferðakostnað í kjördæmi, sem er skattfrjáls. Samtals gerir þetta kr. 1.954.481 á mánuði og að teknu tilliti til skattfrelsis samsvarar það ríflega tveimur milljónum á mánuði. Samt virðist hún of upptekin til að mæta í vinnuna.
Hildur er samt hvergi nærri versta dæmið um þingmenn sem skrópa í vinnunni. Betur að því síðar.
Í fjárlaganefnd er mæting almennt á bilinu 76-100%. Tveir þingmenn skera sig þó úr. Þorgrímur Sigmundsson og Karl Gauti Hjaltason, þingmenn Miðflokksins, eru einungis með 42,86% mætingu, hafa mætt á níu fundi af 21.
Í umhverfis- og samgöngunefnd er mæting á bilinu 78-100%. Einn þingmaður sker sig úr. Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur einungis mætt á níu fundi af 18 og er því með 50% mætingu.
Nefndarmenn í utanríkismálanefnd mæta almennt vel á fundi. Mæting er á bilinu 80-93%. Einn þingmaður er þó einungis með 46,67% mætingu, en það er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Í velferðarnefnd er mæting á bilinu 75-96%, fyrir utan Ingibjörgu Isaksen, þingmann framsóknar, sem er með 58,33% mætingu.
Gamnið kárnar þó fyrst þegar mæting í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er skoðuð. Mætingin er á bilinu 67-100%. Þrír Miðflokksmenn er skráðir með mætingu þar. Þorgrímur Sigmundsson er með 33,33% mætingu, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir er með 16,67% mætingu og Ingibjörg Davíðsdóttir mætti á einn fund og er með 8,33% mætingu.
Orðið á götunni er að fjarvistir stjórnarandstöðunnar á nefndarfundum kunni að skýra vel hvers vegna þingmenn hennar virðast jafnan koma af fjöllum hreinlega ekki kannast við efni þingmála þegar þau koma inn á gólf þingsins í aðra umræðu.
Orðið á götunni er að ef ofangreindir stjórnarandstöðuþingmenn væru á síðasta ári í framhaldsskóla með svona mætingu væri borin von fyrir þá að setja upp hvíta kollinn í vor. Líkast til yrði þeim vísað tafarlaust úr skóla.
Orðið á götunni er að áhugavert væri að komast að því í hvað þessir þingmenn nota tíma sinn og í þágu hverra. Ljóst er að Miðflokkurinn ber höfuð og herðar yfir hina stjórnarandstöðuflokkana þegar kemur að skrópi á nefndarfundum.