Eyjan

Athugasemd frá VR vegna umfjöllunar Orðsins á götunni um launakjör verkalýðsforstjóra

Mynd
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.

Steinunn Böðvarsdóttir, sviðsstjóri samskiptasviðs VR, hefur óskað eftir því að birt verði athugasemd frá félaginu í tilefni af Orðinu á götunni sem birt var 5. júní sl.

Sjá: Orðið á götunni: Verkalýðsforstjórar kasta grjóti úr glerhúsi

Hér er athugasemdin í heild:

"Í pistlinum Orðið á götunni á Eyjunni þann 5. júní sl. var því haldið fram að formaður VR, Halla Gunnarsdóttir, fái 1,9 milljónir króna í laun fyrir formennsku í félaginu. Hið rétta er að hún er með 1.438.079 kr. á mánuði.

Halla er jafnframt varaforseti ASÍ og laun fyrir það eru 230.940 kr.

Vinsamlega athugið að upplýsingar um laun formanns VR eru birtar í ársreikningi félagsins sem birtur er í ársskýrslu á vef VR, vr.is.


Vinsamlega leiðréttið þessa umfjöllun á sama vettvangi."