fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Eyjan

Agla Eir lögfræðingur Viðskiptaráðs

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 3. febrúar 2020 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Agla Eir Vilhjálmsdóttir hefur tekið við starfi lögfræðings Viðskiptaráðs Íslands en hún hefur starfað hjá Viðskiptaráði frá árinu 2018 sem sérfræðingur á lögfræðisviði auk þess sem hún hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands frá því haustið 2019. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Agla Eir mun sinna lögfræðilegri ráðgjöf gagnvart framkvæmdastjóra og stjórn, umsagnagerð, skýrsluskrifum og fleiri verkefnum tengdum málefnastarfi ráðsins – ásamt því að halda áfram utan um starfsemi Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands. Agla Eir er einkum sérhæfð á sviði alþjóðaviðskipta og gerðardómsréttar.

Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir: „Agla Eir hefur starfað hjá okkur sl. tvö ár sem sérfræðingur á lögfræðisviði og aflað sér mikillar þekkingar og reynslu. Okkur er það sönn ánægja að sjá hana taka við sem lögfræðingur ráðsins og halda áfram með þeim drifkrafti sem hún hefur sýnt í sínum störfum.“

Um Öglu Eir

Agla Eir er með meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík en starfaði einnig fyrir ráðið samhliða námi. Hún hefur unnið til verðlauna í málflutningi og stundað skrif á sviði alþjóðlegs gerðardómsréttar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi

Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Itera á Íslandi
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Stjórnarandstaðan fær að heyra það fyrir að kvarta undan vinnu á sunnudegi – „Háttvirtir aumingjar“

Stjórnarandstaðan fær að heyra það fyrir að kvarta undan vinnu á sunnudegi – „Háttvirtir aumingjar“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Oddný var ekki látin vita að hún yrði ráðherra – „Það kom yfir mig einhver svona dauðadoði“

Oddný var ekki látin vita að hún yrði ráðherra – „Það kom yfir mig einhver svona dauðadoði“