Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, segir á heimasíðu sinni í dag að „hér og þar“ séu á kreiki hugmyndir um ný framboð til borgarstjórnar. Þetta segir Styrmir í framhaldi af umræðunni um bíla- og umferðarmálin í Reykjavík og verður ekki skilið öðruvísi en um gagnrýni á núverandi borgaryfirvöld sé að ræða.
„Það er nokkuð ljóst af almanna umtali, að borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavíká erfiða dagaframundan. Það er fyrst og fremst umferðaröngþveitið á höfuðborgarsvæðinu, sem þar kemur við sögu en jafnframt er ljóst að alla vega ímyndborgarkerfisins, þ.e. stjórnkerfis borgarinnar hefur versnað mjög.Sumir almennir borgarar eru sannfærðir um að núverandi meirihluti muni bíða afhroð í næstu kosningum. Það er ekki endilega vísbending um að minnihlutaflokkarnirmuni njóta þess að öllu leyti, því að hér og þar eru á kreiki hugmyndir um ný framboð til borgarstjórnar.
Líklegt má telja að þeir flokkar eða framboð, sem leggja fram trúverðugar tillögur um lausn á umferðaröngþveitinu mundu uppskera í ríkum mæli í kosningum."