Eyjan

Vigdís um Stundina, RÚV og Gísla Martein: „Hjóla í persónu mína þegar rökþrot er“

Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, gagnrýnir Stundina, RÚV og Gísla Martein Baldursson, sjónvarpsmann, fyrir að ráðast á manninn, en ekki boltann, í umræðunni um gangandi vegfarendur og snjallvæðingu umferðarljósa.

Á fundi borgarstjórnar á þriðjudag gagnrýndi Vigdís að gangandi vegfarendur nytu forgangs í Reykjavík og fékk hún nokkra gagnrýni fyrir:

„Eins og við vitum hefur stefna meirihlutans verið sú að gangandi vegfarendur njóti forgangs hér í umferðinni í Reykjavík. Finnst fólki það ekki óeðlilegt að gangandi vegfarendur hafi forgang hér í borginni þegar svo dýrt umferðarljósastýrikerfi er til staðar og á í raun og veru að flýta umferð um allt að 30 til 40 prósent?“

Stundin birti

frétt

um málið á vef sínum og Gísli Marteinn tísti um málið á Twitter:

Þetta hefur farið fyrir brjóstið á Vigdísi, sem segir í dag að Stundin hafi aðeins birt hluta ræðu hennar, þar sem hafi ekki hentað málstaðnum að birta þann hluta  ræðu hennar er fjallaði um að borgin hefði hafnað hugmyndum um göngbrýr við Hringbraut eftir mikla umræðu um málið þegar næstum varð slys á barni fyrr á árinu. Þá segir hún einnig að Gísli Marteinn komi fram pólitískum áróðri, þó svo hann sé starfsmaður RÚV, sem eigi að gæta hlutleysis:

 

„Starfsmaður/þáttastjórnandi RÚV lætur sitt ekki eftir liggja í pólitíkinni frekar en fyrri daginn

Hann titlar hann sig sem "sjónvarpsmann og óopinberan borgarfulltrúa í Reykjavík" á twitter - hvar er nú hlutleysi RÚV?

Neyðarfundur var haldinn í fyrravetur þegar nánast var búið að keyra yfir barn á Hringbraut - borgin hafnar öllum hugmyndum um göngubrú eða undirgöngum á því svæði þrátt fyrir ítrekaðar óskir íbúa hverfisins þar um
Ég fór yfir það í ræðu minni - en auðvitað er það ekki birt í umfjölluninni - hentar ekki málstaðnum

Hér birtist enn á ný hin margnotaða uppskrift að hjóla í persónu mína þegar rökþrot er - það segir mér aðeins eitt - ég er á réttri leið
Eigið góðan laugardag :-)"