Samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í dag hefur Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, óskað eftir því að fjárframlög til svokallaðra stofnframlaga til byggingar eða kaupa almennra íbúða verði 3,7 milljarðar árið 2020 en áður hafði verið ráðgert að dregið yrði úr fjölgun leiguíbúða í almenna íbúðakerfinu. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Stofnframlögin eru notuð til að reisa leiguhúsnæði sem er hugsað til langtímaleigu fyrir fólk sem hefur tekjur og eignir undir ákveðnum mörkum. Upphaflega átti að reisa 300 slíkar íbúðir á næsta ári en nú stendur til að tvöfalda fjöldann og byggja 600 íbúðir með slíkum stofnframlögum. Aukningin er hluti af umsömdu framlagi stjórnvalda til lífskjarasamninga sem gerðir voru síðasta vor.
,,Ég hef lagt mikla áherslu á að húsnæðismál séu velferðarmál og því verður mjög ánægjulegt að fylgja þessari uppbyggingu eftir. Þetta er auk þess einn af þeim þáttum sem lagt var upp með í tengslum við lífskjarasamninga á vinnumarkaði og það er ánægjulegt að þeir séu nú byrjaðir að skila sér í aðgerðum,” segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.