Hin þekkta fjölmiðlakona, Margrét Margreinsdóttir, hefur verið ráðin á sjónvarpsstöðina Hringbraut. Margrét er fyrrverandi fréttamaður og fréttalesari á RÚV og starfaði þar í samtals 16 ár. Í fyrra hóf hún störf sem kynninga- og viðburðastjóri hjá Geðhjálp.
Margrét mun fjalla um fréttatengd mál í nýjum þætti á Hringbraut sem nefnist 21 – þátturinn er á hverjum virkum degi frá 21 til 22. Umsjónarmenn eru Linda Blöndal, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Margrét Marteinsdóttir, Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, og Snædís Snorradóttir.