Dagbjört Hákonardóttir, lögfræðingur á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, hefur tekið við starfi persónuverndarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Tilnefningin kemur í kjölfar gildistöku nýrra persónuverndarlaga í gær, sem kveða á um að allar opinberar stofnanir og mörg einkafyrirtæki þurfi að hafa sérstakan persónuverndarfulltrúa. Hlutverk hans er að vera sérfræðingur viðkomandi aðila í persónuvernd og tengiliður milli stjórnenda, hinna skráðu og Persónuverndar.
Einstaklingar sem óska upplýsinga um vinnslu persónuupplýsinga hjá Reykjavíkurborg sem og leiðbeininga um hvernig þeir geta neytt réttar síns samkvæmt ákvæðum laganna, geta beint erindi sínum til Dagbjartar í gegnum netfangið personuverndarfulltr